Innlent

Tók orðum Ingibjargar ekki sem hótun

Fjölmennt var á borgarafundinum í gær. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir var meðal þeirra sem fluttu framsögu á fundinum.
Fjölmennt var á borgarafundinum í gær. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir var meðal þeirra sem fluttu framsögu á fundinum. MYND/Stefán

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur, sem hélt ræðu á opnum borgarafundi í Háskólabíóí gærkvöldi tók orðum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, fyrir fundinn ekki sem hótun.

Sigurbjörg sagði í ræðu sinni að ónefndur ráðherra hefði haft samband fyrir fundinn og hvatt sig til þess að gæta orða sinna á fundinum vegna starfsheiðurs síns og framamöguleika. Margir á fundinum tóku því sem svo að um Guðlaug Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, væri að ræða en Sigurbjörg var ráðgjafi í heilbrigðisráðuneytinu á síðasta ári. Hún var einnig meðal umsækjenda um starf forstjóra Sjúkratryggingastofnunar. Guðlaugur neitaði í dag að hafa rætt við Sigurbjörgu fyrir fundinn.

Ingibjörg sendi frá sér tilkynningu seinnipartinn í dag frá Stokkhólmi þar sem hún er í veikindaleyfi. Þar kom fram að í krafti vináttu vildi Ingibjörg ráða Sigurbjörgu heilt og kom þeim skilaboðum til hennar frá Stokkhólmi að nálgast ræðu sína á borgarafundinum ,,af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn."

,,Nei nei, þetta var aðvörun og kannski vel meint," sagði Sigurbjörg aðspurð hvort hún hafi litið á orð utanríkisráðherra sem hótun. Meiningin hafi ekki verið að setja fram dylgjur og það sjáist vel þegar hlustað sé á ræðuna.

Að öðru leyti vildi Sigurbjörg ekki tjá sig meira um málið.




Tengdar fréttir

Ingibjörg ráðlagði Sigurbjörgu fyrir borgarafundinn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, ráðlagði Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, stjórnsýslufræðingi, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær að nálgast ræðu sína á fundinum af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn.

Segist ekki hafa hótað ræðumanni á borgarafundi

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær, sagði í ræðu sinni að ónefndur ráðherra hefði hringt í sig fyrir fundinn og hvatt sig til þess að gæta orða sinna á fundinum vegna starfsheiðurs síns og framamöguleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×