Innlent

Hefja handfæraveiðar á makríl

Nýr veiðiskapur í atvinnuskyni hefst væntanlega hér við land í næsta mánuði þegar nokkrir smábátasjómenn, einkum frá Suðausturlandi, ætla að hefja handfæraveiðar á makríl. Gerðar hafa verið tilraunir með þess háttar veiðar tvö undanfarin sumur og veiddu nokkrir smábátar 7.600 tonn af makríl í fyrrasumar.

Hornfirskur smábátasjómaður frá Höfn í Hornafirði segir í viðtali við Sjávarfréttir að sá árangur sýni að þetta sé hægt og verið sé að þróa frekar búnað til veiðanna. Aflinn er ýmist heilfrystur eða heitreyktur til manneldis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×