Sjö stúlkur börðu 15 ára stúlku í Heiðmörk 29. apríl 2009 20:32
Farið var með 15 ára stúlku í Heiðmörk í dag þar sem hún var barin illa. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru árásarmennirnir hópur sjö stúlkna á aldrinum 16 til 17 ára og höfðu tvær þeirra sig hvað mest frammi. Fórnarlamið var skilið eftir við verslunarmiðstöð í Hafnarfirði. Hjá lögreglu fengust þær upplýsingar að rannsókn málsins væri á frumstigi. Samkvæmt heimildum taldi ein af stúlkunum sig eiga óuppgerðar sakir við fórnarlambið sem býr í Hlíðunum. Sú fékk fórnarlambið til að ræða við sig í bifreið sinni seinnipartinn í dag. Við Suðurver settust sex vinkonur stúlkunnar í bifreiðina sem var í framhaldinu ekið í Heiðmörk. Þar var hin 15 ára gamla stúlka dregin út úr bifreiðinni og hún lamin. Þar gengu tvær af stúlkunum hvað harðast fram og veittu fórnarlambinu meðal annars höfuðhögg. Stúlkurnar sjö óku því næst með fórnarlambið og skildu hana eftir við verslunarmiðstöðina Fjörðinn í Hafnarfirði. Þar kallaði stúlkan eftir aðstoð og í framhaldinu var farið með hana á slysadeild. Eftir að gert var að sárum hennar fór á hún á lögreglustöð í fylgd með foreldrum sínum og gerði grein fyrir árásinni, segir varðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt honum var stúlkan með talsverða áverka á andliti. Rannsókn málsins er á frumstigi.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira