Þarf ekki að kaupa siðferðilega aflausn 29. apríl 2009 05:30 „Það sem miður góðviljaðir aðilar hafa rætt og ritað um þetta sýnir aðeins þeirra innræti en ekki mitt og er þar af leiðandi þeirra vandamál en ekki mitt,“ segir á bloggsíðu nýkjörins alþingismanns vegna umræðu um heiðurslaun hans.
Þráinn Bertelsson, nýkjörinn alþingismaður Borgarahreyfingarinnar, hyggst ekki afsala sér heiðurslaunum listamanna sem Alþingi hefur um árabil samþykkt honum til handa. „Góðviljaðir aðilar hafa ráðlagt mér að kaupa mig undan þessari athygli með því að gefa andvirði heiðurslauna til einhvers líknarfélags en þeirri lausn hafna ég, enda þarf ég ekki að kaupa mér siðferðilega aflausn hafandi ekkert af mér brotið - annað en þiggja án umsóknar æðstu viðurkenningu sem íslenska þjóðin kann að veita listamönnum sínum," segir Þráinn í yfirlýsingu. „Það er illt til þess að vita að heiðurslaun mín sem nema eitthundrað og fimmtíu þúsund krónum á mánuði fyrir skatta - og hafa ekkert með starfslaun listamanna að gera - skuli hafa valdið svona mikilli fjölmiðlaathygli og vandlætingu," bætir Þráinn við og segir mörg fordæmi fyrir því að alþingismenn þiggi önnur laun en þingfararkaup. „Jafnframt er það regla fremur en undantekning að heiðurslaunaþegar þiggi laun eða eftirlaun fyrir önnur störf, enda væru heiðurslaun ekki annað en fátæktargildra ef ekki væri heimilt að afla tekna umfram þau." Í tillögu sem stjórn Borgarahreyfingarinnar samþykkti og sendi þingmönnum sínum í gær kemur fram að stjórnin telji starf þingmanns vera fullt starf og að þingmenn eigi ekki að taka laun frá Alþingi fyrir önnur störf ótengd þingstörfum meðan á þingsetu stendur. Slíkum launum eigi annað hvort að afsala eða láta renna til góðgerðarmála. „Í tilfelli Þráins Bertelssonar þá telur stjórnin að hafa beri í huga að heiðurslaun til listamanna eru verðlaun fyrir áður unnin störf og fyrir framúrskarandi árangur á sviði lista, en ekki hefðbundin laun í skilningi þess orðs, þótt verðlaunin séu greidd út reglulega og yfir langt tímabil. Því er það á hans færi að ákveða með hvaða hætti hann nýtir þau laun," segir stjórn Borgarahreyfingarinnar.- gar
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Sjá meira