Barnabarnið beið í bílnum 29. apríl 2009 04:30 Mennirnir voru leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.Fréttablaðið/vilhelm
Talið er að þrjár konur hafi beðið í bíl fyrir utan hús eldri hjóna á Arnarnesinu á laugar-dagskvöld á meðan tveir karlmenn fóru inn og rændu fólkið með vopnavaldi. Ein kvennanna er barnabarn fólksins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hún hefur verið í óreglu. „Við höfum það alveg þokkalegt miðað við aðstæður,“ segir Ásgerður Helgadóttir. Hún segir erfitt til þess að hugsa sé það rétt að barnabarn hennar tengist málinu. Annar ræningjanna sló Ásgerði í höfuðið, en hún segist öll að koma til. Það sé léttir að árásarmennirnir sitji bak við lás og slá eftir snör viðbrögð lögreglu. Mennirnir, sem voru grímuklæddir og vopnaðir hnífum, hótuðu fólkinu lífláti. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. maí í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Lögregla fór fram á varðhaldið vegna almannahagsmuna, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn rannsóknardeildar hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Tveir karlar og tvær konur voru handtekin vegna málsins á mánudag. Karlarnir og önnur konan játuðu þátt sinn í málinu. Þá var kona handtekin í gær, og játaði hún einnig að tengjast málinu. Konunum var sleppt úr haldi í gær. Málið er nú talið upplýst að mestu, en eftir er að hnýta lausa enda, segir Friðrik Smári.- bj, jss
Mest lesið Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Fleiri fréttir „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Sjá meira