Innlent

Svalaslys í Ölveri: Óskað eftir úttekt Vinnueftirlitsins

Stjórn Ölvers, sem rekur sumarbúðir KFUM og KFUK, þar sem svalir gáfu undan tuttugu börnum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að þau féllu tvo og hálfan metra, segjast harma atvikið. Að auki hefur stjórnin óskað eftir úttekt Vinnueftirlitsins á aðbúnaði sumarbúðanna til að ganga úr skugga um að öll börn njóti fyllsta öryggis í sumarbúðunum.

„Það er mikil Guðsmildi að ekkert barnanna slasaðist alvarlega," segir í tilkynningunni.

Lesa má tilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan:

Stjórn Ölvers, sumarbúða KFUM og KFUK, harmar atvik sem upp kom í ferðalagi í Grundaskóla á Akranesi í gærkvöldi. Það er mikil Guðsmildi að ekkert barnanna slasaðist alvarlega. Lögreglan kannar nú tildrög slyssins.

Stjórn sumarbúðanna hefur ávallt kappkostað að fylgja öllum öryggiskröfum og lagt áherslu á að framfylgja þeim athugasemdum sem fram hafa komið í góðu samráði við eftirlitsyfirvöld. Hefur stjórnin þegar óskað eftir úttekt Vinnueftirlitsins á aðbúnaði sumarbúðanna til að ganga úr skugga um að öll börn njóti fyllsta öryggis í sumarbúðum KFUM og KFUK.

Virðingarfyllst, Gyða Karlsdóttir, Framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi.




Tengdar fréttir

Svalaslysið í Ölveri: Gríðarleg geðshræring

„Börnin voru á kvöldvöku þegar svalirnar hrundu," segir Arndís Halla Guðmundsdóttir, en tuttugu börn féllu niður af svölum í Ölveri í Borgarnesi klukkan hálf níu í gærkvöldi. Um er að ræða tólf ára börn í Grundaskóla á Akranesi sem voru í skólaferðalagi. Atvikið átti sér stað á kvöldvökunni þegar tveir nemar fóru út úr húsinu í einum leiknum. Þá þustu börnin tuttugu út á svalir til þess að fylgjast með þeim. Aðeins örfáum sekúndum síðar heyrði Arndís lætin.

Svalir brustu undan tuttugu manns

Minnstu munaði að illa færi þegar svalir á húsi í Ölveri, undir Hafnarfjalli, hrundu undan hópi tuttugu unglinga í gærkvöldi. Nokkrir unglingar meiddust, en þó ekki alvarlega. Hópurinn var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Akranesi og dvelur einn þar enn til eftirlits.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×