Vonar að þjónusta lögreglu versni ekki 23. júlí 2009 06:30 Niðurskurður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að skera niður um 57,1 milljón króna á síðari helmingi ársins. Lögreglustjóri segist ítrekað hafa varað við frekari niðurskurði, en fjárveitingarvaldið sé hjá Alþingi.Fréttablaðið/Daníel „
Þjónusta lögreglunnar við borgarana má ekki vera verri, okkar markmið er að þjónustan skerðist ekki, og ég vona að það takist,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Unnið er að tillögum um niðurskurð hjá lögregluembættum landsins hjá dómsmálaráðuneytinu, en óvíst er hvenær þær verða kynntar. Ragna segir að lengi hafi legið fyrir að tíu prósenta hagræðingarkrafa sé gerð til allra málaflokka annarra en menntamála og velferðarmála. Ekki hafi verið talið æskilegt að fara í flatan niðurskurð hjá lögregluembættum landsins, og því sé nú leitað annarra leiða til að mæta hagræðingarkröfunni. Lögreglumenn hafa undanfarið bent á slæmt ástand löggæslu í landinu. Sú umræða hefur raunar verið í gangi lengi. Ragna segir að í dómsmálaráðuneytinu sé fylgst grannt með þróun mála, en fjárveitingar hafi verið ákveðnar og ekki komi til greina að sækjast eftir aukafjárveitingu fyrir lögregluna. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segist ítrekað hafa varað við frekari niðurskurði hjá lögreglu. Fjárveitingarvaldið sé hins vegar hjá Alþingi, og þegar þaðan berist fyrirmæli um niðurskurð verði að hlíta því. Lögregluembætti um allt land þurfa að skera niður í rekstri á síðari hluta ársins. Stefán segir að gerð sé krafa um að skorið verði niður um 57,1 milljón króna á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn fullyrða að viðbragðstími lögreglu sé í mörgum tilvikum óviðunandi. Stefán segist ekki hafa tölfræði um það fyrir framan sig, en verkefnum sé augljóslega forgangsraðað. Forgangsverkefnum sé sinnt fyrst á kostnað verkefna sem megi bíða. Það skili sér óhjákvæmilega í því að lengri tíma taki að leysa úr verkefnum sem geti beðið. Stefán hafnar því að fjárskortur hafi valdið því að ekki hafi verið til tómir diskar fyrir upptökutæki lögreglu, eins og lögreglumenn fullyrða. Lögreglan endurnýti gamla diska og handvömm hafi valdið því að ekki hafi verið til tómir diskar. Úr því hafi nú verið bætt. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir Reykjavíkurborg hafa átt mjög gott samstarf við löggæsluyfirvöld á liðnum árum. Ástandið sé þannig að allir verði að skera niður, en hún treysti því að lögregla og dómsmálayfirvöld útfæri slíkan niðurskurð með hagsmuni borgarbúa í huga. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Illa lagður pallbíll upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bein útsending: Kristrún með ávarp vegna atkvæðagreiðslunnar Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Sjá meira