Icesave rætt í fyrsta lagi á fimmtudag 20. júlí 2009 05:00 Helgi Hjörvar þingmaður
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir að nefndin sé að vinna eins fljótt og hægt er að því að klára vinnu við nefndarálit um Icesave-samninginn. Álitið verður tilbúið í fyrsta lagi á miðvikudaginn, að sögn Guðbjarts. „Ég vil meina að allt sem við þurfum til að taka ákvörðun liggi fyrir. Þá er bara að skrifa nefndarálit og hugsanlega gera tillögur að breytingum á frumvarpinu," segir Guðbjartur. Hann segir að reynt verði að ná breiðari sátt um málið. Til dæmis finnist mönnum að setja eigi endurskoðunarákvæði í samninginn. Verið er að skoða hvort ákvæðið muni fella samninginn. Telur Guðbjartur að málið fari til þriðju umræðu í fyrsta lagi á fimmtudag eða tefjist jafnvel fram í næstu viku. Fjárlaganefnd fundar á morgun en nefndarálit er ekki hægt að skrifa fyrr en nefndarálit koma frá efnahags- og skattanefnd og utanríkismálanefnd. Álit fjárlaganefndar um Icesave er meðal annars unnið upp úr hinum tveimur álitunum. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, segir að nefndin hafi lokið við að hitta gesti og verið sé að leggja lokahönd á umsögn nefndarinnar. Nefndin hefur haft málið til umfjöllunar í hálfan mánuð. „Ég reikna með að þetta verði rætt í nefndinni á morgun eða í síðasta lagi á þriðjudaginn til að kanna hvort það er samstaða um álitið," segir Helgi, sem setur þó þann fyrirvara að þetta gæti tekið lengri tíma. Ólöf Nordal, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í fjárlaganefnd, vill fresta málinu fram á haust. Vill hún að fjárlaganefnd noti sumarið „til að vinna að þessu af einhverju viti" og þingið klári þetta á septemberþinginu. „Samkvæmt samningnum þurfum við að afgreiða þetta á sumarþingi, en því lýkur 15. september. Það þýðir að við myndum hafa tvær vikur í september til að afgreiða þetta í staðinn fyrir að keyra þetta áfram án þess að vera búin að svara grundvallarspurningum um sjálfan samninginn," segir Ólöf. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Sjá meira