Stefán Karl kom Slash í jólaskapið 19. desember 2009 04:00 Tveir góðir Fyrrverandi gítarleikari rokksveitarinnar Guns n‘ Roses,<B> Slash, mætti á söngleikinn um Trölla sem </B>Stefán Karl leikur og hrósaði íslenska leikaranum í hástert baksviðs fyrir frammistöðuna. „
Hann kom á fimmtudagskvöldið, allur gataður í klessu með hatt á hausnum, klæddur í leðurjakka og þröngar gallabuxur með kurteisa krakka með sér og ljóshærða frú. Þau voru mjög falleg fjölskylda og ég held hreinlega að ég hafi komið Slash í jólaskapið," segir Stefán Karl Stefánsson. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá leikur Stefán Karl sjálfan Trölla í söngleik sem nú er sýndur fyrir fullu húsi í Panteges-leikhúsinu í Hollywood. Í vikunni var síðan sagt frá því að stórstjörnur borgarinnar legðu nú leið sína í leikhúsið í aðdraganda jólanna til að berja Stefán og félaga augum. Meðal þeirra sem hafa sest niður og átt notalega stund með börnunum sínum eru þau Gwen Stefani og Gavin Rossdale og svo Ben Stiller, gamanleikarinn góðkunni. Nafnið Slash kveikir kannski líka á einhverjum jólaljósum enda var hann gítarleikari í einhverri alræmdustu rokksveit heims, Guns n' Roses. Stefán viðurkennir að hann hlusti nú um stundir ekki mikið á þessa graðhestatónlist sem rokksveit Slash stóð fyrir en hann hafi alveg dillað hausnum við Paradise City og Welcome to the Jungle á sínum tíma. Svo hrifinn var reyndar Slash af frammistöðu Stefáns að hann tróð sér baksviðs eins og alvöru rokkgrúppía og heimtaði að ná tali af Trölla. „Ég vildi nú ekki láta taka neina mynd af mér því ég var bara á náttsloppnum. En hann var mjög hrifinn og sagði að þetta hlyti að vera eins og að halda rokk-konsert."- fgg
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Matur Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Sjá meira