Á fimmta þúsund manns ráðnir til sumarstarfa hjá Borginni 3. mars 2009 17:54 Hanna Birna gerði sumarstörf borgarinnar að umtalsefni í dag.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar fyrr í dag að Reykjavíkurborg myndi ráða yfir 4.100 einstaklinga í ýmis konar sumarstörf í sumar. Flestir eða um 2.900 verða ráðnir til tímabundinna starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur. Ríflega 840 verða ráðnir til afleysinga á fagsviðum borgarinnar. Að auki er stefnt er að því að skapa að minnsta kosti 400 sumarstörf með 96 milljón króna sértækri fjárveitingu. „Ég er ákaflega ánægð með að okkur muni takast að veita svo mörgum atvinnu í sumar og raun ber vitni- einkum fyrir unga fólkið í borginni. Með því stuðlum við í senn að því að unnið sé að uppbyggilegum verkefnum í borginni og ungmenni og aðrar verkefnalausar hendur fái verðug verkefni," sagði Hanna Birna af þessu tilefni. Hanna Birna sagði frá því að við skipulagningu starfsemi Vinnuskólans hefði verið haft að leiðarljósi að veita sem flestum umsækjendum vinnu þó takmarka þyrfti vinnutíma. Af fagsviðum borgarinnar ræður Umhverfis- og samgöngusvið flesta eða 414. Af þeim verða um 200 leiðbeinendur í Vinnuskóla Reykjavíkur. Þar á eftir koma Velferðarsvið, Framkvæmda- og eignasvið og Íþrótta- og tómstundasvið. Í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra kemur fram að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að 96 milljón krónur renni til sérstækra atvinnuátaksverkefna í sumar. Þegar hafa 46 milljónir verið eyrnamerktar verkefnum bæði innan og utan stofnana borgarinnar. Eftir standa um 50 milljónir. Samráðsnefnd um sumarstörf tekur ákvörðun um hvernig þeim fjármunum verður varið á allra næstu vikum. Reiknað hefur verið út að hægt verði að skapa 400 sumarstörf fyrir átaksfjármagnið. Með endurskoðun vinnutíma er ekki útilokað að þau geti orðið enn fleiri.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira