Íbúar fá ekki að snúa heim í kvöld 3. mars 2009 18:42
Aftakaveður hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum síðan í gærkvöldi og hafa hús verið rýmd þar sem hætta er á snjóflóðum. Íbúar hosanna sem hafa verið rýmd fá ekki að snúa aftur heim fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Hættustigi vegna snjóflóðahættu í Bolungarvík var lýst yfir um kvöldmatarleytið í gær og voru fimm hús þá rýmd. Nokkur snjóflóð féllu í grennd við Ísafjörð og Bolungarvík í nótt og í morgun. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið. Blindhríð og skafrenningur hafa verið á svæðinu í allan dag. Vegirnir um Hnífsdal, Óshlíð og Súðavíkurhlíð hafa verið lokaðir frá því í gærkvöldi. Um miðjan dag voru nokkrir sveitabæir á norðanverðum Vestfjörðum rýmdir vegna snjóflóðahættu og atvinnuhúsnæði á Ísafirði. Ekki er vitað um slys á fólki. Ökumaður slapp hins vegar með skrekkinn eftir að hann missti stjórn á bíl sínum þar sem hann sá ekki út úr bílnum vegna aftakaveðurs og ók á íþróttahúsið á Ísafirði. Bíllinn er mikið skemmdur. Veður enn vont á svæðinu. Þeir tuttugu og sex íbúar sem búa í húsunum sem hafa verið rýmd fá því ekki að snúa aftur til síns heima fyrr en í fyrsta lagi á morgun.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira