Jóhanna segir að fullu staðið við samkomulag gagnvart framsókn 3. mars 2009 20:14
Forsætisráðherra segir að það hafi komið á óvart að Framsóknarmenn vilji loka Alþingi sex vikum fyrir kosningar, án þess að gefa nauðsynlegan tíma til afgreiðslu fjölda mála sem ríkisstjórnin hafi afgreitt til þings um aðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki í landinu. Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vilja slíta þingi í lok næstu viku og hefja þá þegar kosningabaráttuna en þá verða sex vikur til kosninga. Formaður Framsóknarflokksins sakaði ríkisstjórnina að auki um það í fréttum okkar í gær að draga lappirnar í aðgerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á fréttamannafundi ríkisstjórnarinnar í morgun að þetta væri rangt hjá formanni Framsóknar. Jóhanna segir að það sé mjög skerkennilegt miðað við þá stöðu sem sé í samfélaginu að það sé óskað eftir því að Alþingi sé lokað í einn og hálfan mánuð og engum málum komið í gegn. Og því til stuðnings kynntu leiðtogar stjórnarflokkanna llista yfir 30 mál sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér og eru á ýmsum stigum í meðförum Alþingis, þar af eru níu mál sem varða atvinnulíf og heimili beint, svo sem eins og breyting á lögum um aðför, nauðungasölu og gjaldþrotaskipti, frumvarp um atvinnuleysistryggingar, útgreiðslu séreignasparnaðar og fleira. Steingrímur segist telja að það sé langbest að taka menn á orðinu. Í orði kveðnu hafi framsóknarmenn og sjálfstæðismenn sagt að þeir vilji greiða götu allra góðra frumvarpa. Að auki segir forsætisráðherra Framsóknarmenn hafa lýst stuðningi við aðgerðir sem þessar auk breytinga á stjórnkerfi og stjórnarskrá til aukins lýðræðis. Það hafi því komið sér mjög á óvart sem komið hafi frá formanni framsóknarflokksinjs í gær. Jóhanna segir að það hafi verið að fullu staðið við það er varði samkomulag við Framsóknarflokkinn í upphafi ríkisstjórnarsamstarfsins.
Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Sjá meira