Lóðarkaupandi segir áhættu nánast enga 16. febrúar 2009 04:30 Staðurinn er frábær og áhættan af lóðakaupunum nánast engin eftir að borgin breytti skilmálum segir bjartsýnn lóðarkaupandi á Haukdælabraut í Reynisvatnsási. Fréttablaðið/Anton „
Það er engin áhætta í þessu lengur,“ segir Þorleifur H. Lúðvíksson, einn fimm sem þáðu einbýlishúsalóð á Reynisvatnsási úr síðasta hópi umsækjenda. Um 650 umsækjendur voru um 96 lóðir fyrir raðhús, einbýlishús og parhús á Reynisvatnsási í desember 2007. Þeir sem fengu úthlutun hættu flestir við þegar fór að síga á ógæfuhliðina í efnahagsmálunum. Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar, segir að í fyrra hafi tvisvar verið reynt að endurúthluta óseldum lóðum. Eftir að borgaráð hafi í nómvember samþykkt hagstæðari greiðsluskilmála og lengri framkvæmdafrest hafi verið haft samband við um eitt hundrað umsækjendur sem enn voru eftir. Þá hafi þessar fimm einbýlishúsalóðir gengið út. Verð lóðanna er 11 milljónir króna sem er óbreytt frá fyrstu úthlutun. Hægt er að greiða tíu prósent út og afganginn á átta árum með fjögur prósent vöxtum og verðtryggingu. Auk Þorleifs, tryggðu bæði faðir hans og bróðir sér lóð við Haukdælabraut. Fyrir átti systir þeirra bræðra lóð við þessa götu. Þorleifur segist skilja að einhverjir telji þau fífldjörf á krepputímum en telur það byggt á þekkingarleysi. „Ég efast um að fólk hafi áttað sig á því að kvaðir á þessum lóðum hafa breyst mikið. Nú hafa menn tvö ár til að byrja að byggja. Útborgun er lítil og menn geta skilað lóðinni hvenær sem er og fengið það sem þeir hafa lagt út endurgreitt með verðbótum,“ útskýrir Þorleifur. Fjölskylda Þorleifs á verktakafyrirtæki og Þorleifur segir það vissulega koma til greina að byggja hús og selja. Hann hafi þó í huga að flytja með eigin fjölskyldu í húsið. Báðir búi bræðurnir þegar í hverfinu handan Reynisvatns og líki vel. Nýja svæðið sé frábært og margir þeirra sem sótt hafi um lóðir þar séu einmitt íbúar í Grafarholti. „Byggingarkostnaður hefur lækkað töluvert og ég tel mig geta farið úr raðhúsi í einbýlishús fyrir svipað verð. Hugmyndin er sú að ef ég næ að selja íbúðina er ódýrar fyrir mig að byggja núna en það var fyrir hálfu ári. En ef íbúðarverð lækkar mikið fæ ég minna fyrir íbúðina mína og þá fer ég einfaldlega ekki af stað,“ segir Þorleifur. Ágúst Jónsson segir að enn séu eftir liðlega þrjátíu lóðir á Reynisvatnsási. Búast megi við því að þær og lausar lóðir í Úlfarsárdal verði auglýstar fyrir páska. gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Sjá meira