Heilbrigðisþjónusta hér er í fremstu röð 16. febrúar 2009 03:00 Ólafur Ólafsson.
Íslensk heilbrigðisþjónusta er í fremstu röð á heimsmælikvarða. Þetta kemur fram í nýrri grein í Læknablaðinu, sem fjórir íslenskir sérfræðingar hafa tekið saman. „Þetta segir okkur til dæmis að ef þú færð hjartaáfall, þá væri best fyrir þig að vera annað hvort á Íslandi eða í Svíþjóð," segir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, einn af höfundum greinarinnar. Hann vísar þarna í alþjóðlega rannsókn á kransæðasjúkdómum, sem Íslendingar hafa tekið þátt í frá árinu 1982. Niðurstöður hennar sýna að Ísland, Svíþjóð og Noregur ná bestum árangri þegar skoðað er hve margir hafa lifað af áfallið. „Varðandi krabbameinssjúkdóma, þá sýna krabbameinsskrár, sem haldnar eru í öllum löndum, að þegar skoðað er hve margir eru lifandi fimm árum eftir að þeir veikjast, þá kemur aftur í ljós að við erum ásamt Svíum í fremstu röð í Evrópu. Varðandi árangurinn koma Bandaríkjamenn víða einna best út, en skráningin er ekki eins traust þar því að erfitt er að fylgja fólki eftir." Í greininni í Læknablaðinu er einnig skoðað hvaða árangur hefur náðst hér á landi í baráttunni við augnsjúkdóma, og þá kemur í ljós að tekist hefur að draga til dæmis úr tíðni blindu vegna gláku frá því að vera með því hæsta sem þekktist í Evrópu um miðja síðustu öld niður í þá lægstu í Evrópu. Ólafur segir einkum þrennt skýra þennan góða árangur, þótt fleira megi væntanlega tína til að auki. „Eitt er það hve gott aðgengi er að heilbrigðisþjónustu hér á landi, annað er að við eigum vel þjálfaða lækna og sérfræðinga, og svo er þetta ekki síst því að þakka að almenningur virðist vera mjög vel upplýstur og fylgist vel með." Hann vill einnig taka fram, að þótt margir séu oft að tönnlast á því hve dýr heilbrigðisþjónustan er hér á landi, þá hafi komið fram í Hagtíðindum á síðasta ári að í samanburði við aðrar OECD-þjóðir er Ísland í 10. til 11. sæti hvað kostnað hennar varðar. „Þetta kom í ljós eftir að Hagstofan fór að taka þetta saman á sama hátt og aðrar þjóðir, nefnilega hvað varðar framlag af landsframleiðslu til heilbrigðisþjónustunnar." Auk Ólafs eru höfundar greinarinnar í Læknablaðinu þeir Gunnar A. Ólafsson, sem er sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, Jón G. Jónasson, prófessor í krabbameinsfræðum, og Friðbert Jónasson prófessor í augnsjúkdómum.- gb
Mest lesið „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Gular viðvaranir taka gildi Veður Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast Innlent Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent Fleiri fréttir Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Víðir hefur nú loks tíma fyrir Lunch United Samfélagsmiðlabann án fræðslu stoðar lítið Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Sjá meira
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent