Innlent

Segir Ólaf Ragnar hafa farið með rangt mál

Eiður Guðnason fyrrverandi sendiherra segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi farið með rangt mál þegar hann bar af sér í Kastljósi ýmis ummæli, sem sendiherra Noregs sagði hann hafa látið falla í hádegisverðarboði erlendra sendiherra í danska sendiráðinu á Íslandi í fyrrahaust, og fræg urðu.

Þetta kemdur fram í grein Eiðs í Morgunblaðinu. Í boðinu var Ólafur Ragnar meðal annars sagður hafa verið harðorður í garð Breta, Dana og Svía og sagt að Rússum stæðu allar dyr opnar á Íslandi, eins og til dæmis aðstaða á Keflavíkurflugvelli. Norska blaðið Klassekampen birti útdrátt úr skýrslu norska sendiherrans um fundinn og hefur Eiður það eftir öðrum sendiherra, sem sat fundinn, að það, sem birtist í blaðinu af umræddum fundi, sé rétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×