Ný stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu innan árs Heimir Már Pétursson skrifar 16. febrúar 2009 18:32
Drög að nýrri stjórnarskrá fyrir íslenska lýðveldið gæti verið komin til þjóðaratkvæðagreiðslu eftir níu til ellefu mánuð. Stjórnarskrá Íslands er í grunninn sú sama og Danakonungur færði þjóðinni árið 1874. Þrátt fyrir fyrirheit um allsherjar endurskoðun hennar hefur það ekki gerst, þótt breytingar hafi verið gerðar á t.d. mannréttindakafla hennar. Í frumvarpi þingmanna Framsóknarflokksins er gert ráð fyrir að stjórnlagaþing verði kallað saman innan fjögurra mánaða frá gildistöku laganna og til starfi í sex mánuði, en það hafi heimild til að framlengja starfstíma sinn um tvo mánuði telji stjórnlagaþingmenn þess þörf. Kjörnir verði 63 aðalfulltrúar á þingið í persónukjöri þar sem landið allt er eitt kjördæmi. Einnig verði kosnir 63 fulltrúar til vara. Stjórnlagaþingmenn njóti sömu kjara og þingmenn og forsetar þess sömu kjara og forsetar Alþingis. Sá sem býður sig fram skal hafa aflað sér meðmæla 300 kosningabærra manna. Allir sem hafa atkvæðarétt í alþingiskosningum geti kosið á stjórnlagaþingið og allir að undanskildum, þingmönnum, ráðherrum, forseta Íslands og varaþingmönnum geti boðið sig fram til stjórnlagaþings samkvæmt sömu reglum og að öðru leyti gilda um framboð til Alþingis. Hver kjósandi megi kjósa sjö fulltrúa til þingsins.Þegar stjórnlagaþing hefur lokið störfum skal tillaga að nýrri stjórnarskrá lögð í þjóðaratkvæðagreiðslu innan tveggja mánaða og ræður þá einfaldur meirihluti hvort hún verður samþykkt eða ekki. Náist ekki tilskilinn meirihluti, skal stjórnlagaþing koma saman aftur og þá verða varafulltrúar aðlfulltrúar og öfugt. Það þing fengi þrjá mánuði til að gera breytingar á tillögunni áður en hún yrði aftur send í þjóðaratkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunnar. Umboðsmaður Alþingis skal gegna embætti dómsmálaráðherra hvað varðar framkvæmd kosninga til stjórnlagaþingsins og þjóðaratkvæðagreiðsluna. Samþykki Alþingi frumvarpið getur þjóðin mögulega greitt atkvæði um nýja stjórnarskrá innan níu til ellefu mánaða.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Sjá meira