Steingrímur: Varð fyrir vonbrigðum með aðgerðarleysi 5. janúar 2009 14:42 Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sem kallaði til fundar í utanríkismálanefnd í dag til þess að ræða ástandið á Gaza segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með félaga sína í nefndinni yfir því að ekki skuli hafa náðst samkomulag um ályktun vegna málsins. Nefndin ákvað að vinna að tillögu sem lögð verði fyrir Alþingi þegar þing kemur saman að nýju í lok janúar. „Því miður var ekki stuðningur við það að láta eitthvað frá sér fara núna sem eru vonbrigði," segir Steingrímur í samtali við Vísi. „Ég hefði viljað að utanríkismálanefnd sendi frá sér skýr skilaboð í þessu máli eins og ríkisstjórnin ætti að gera. Vissulega var yfirlýsing utanríkisráðherra í gær allra góðra gjalda verð en það virðist sem hún tali ekki fyrir hönd allrar ríkisstjórnarinnar og tekst að vera ósammála um þetta eins og annað þessa dagana." Steingrímur bendir á hörmungarnar á Gaza séu í gangi í dag og að margt geti breyst áður en þing kemur saman að nýju. Því skipti máli að bregðast hratt við. „Ég var ekki að fara fram á annað en að talað yrði í nafni nefndarinnar og að hún mótaði skýra afstöðu fyrir sitt leyti," segir Steingrímur. Að hans mati er framferði Ísraels algjörlega óverjanlegt og óásættanlegt. „Þarna fer fram hernaðarofbeldi gegn varnarlausu innilokuðu fólki með stórfelldu mannfalli óbreyttra borgara. Framferði sem aldrei getur verið réttlætanlegt og alþjóðasamfélagið verður að taka skýrari afstöðu en það hefur gert hingað til." Steingrímur segir að allir kostir verði að vera uppi á borðum. „Viðskiptalegar og pólitískar refsiaðgerðir koma til greina auk slita á stjórnmálasamstarfi ef ekki verður fallist á vopnahlé. Það verður að koma fram af miklu meiri ákveðni gegn ísraelskum stjórnvöldum ef það á að hafa einhver áhrif. Þó að við veltum ekki þungu hlassi þá getum við þó talað fyrir okkur sjálf og látið koma skýrt fram hvernig okkur misbjóði þetta. Fyrir því var ekki meirihluti í nefndinni þannig að ég verð að sætta mig við það," segir Steingrímur að lokum.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Sjá meira