Hummer Björgólfs málaður rauður Stígur Helgason skrifar 24. ágúst 2009 06:00 AlRauður jeppi Bíll Björgólfs stóð fyrir utan Háskólann í Reykjavík þegar hann var málaður.
Hummer-jeppi Björgólfs Thors Björgólfssonar var úðaður með rauðri málningu fyrir utan Háskólann í Reykjavík í nótt. Sömu skemmdarvargar úðuðu einnig rauðri málningu á hús Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings. Fjölmiðlum bárust tilkynningar um bæði skemmdarverkin í gærmorgun frá sama netfangi. Skemmdarverk hafa verið unnin á heimilum fjölmargra manna úr viðskiptalífinu undanfarna mánuði. Meðal annarra sem hafa orðið fyrir málningarárásum af þessu tagi eru Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi eigandi Landsbankans og Steingrímur Wernersson, annar eigandi Milestone. Þá var kveikt í Range Rover jeppa Stefáns Hilmarssonar, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs. Öll málin eru óupplýst og ekki er vitað hvort sömu menn eru að verki í öllum tilvikum. Þá hafa skemmdarverk einnig verið unnin á heimilum fólks sem tengist orkugeiranum, til dæmis Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, Rannveigar Rist, forstjóra Alcan, og Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira