Enski boltinn

Blöðrumarkið var ólöglegt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sundboltinn frægi er til hægri.
Sundboltinn frægi er til hægri. Nordic Photos / Getty Images
Jeff Winter, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, segir að markið sem Sunderland skoraði gegn Liverpool hafi verið ólöglegt.

„Reglurnar eru skýrar hvað þetta varðar," sagði Winter í samtali við BBC. „Ef eitthvað utanaðkomandi hefur áhrif á leikinn ber að stöðva hann."

Markið skoraði Darren Bent strax á fimmtu mínútu leiksins í gær og reyndist það vera sigurmark leiksins. Eins og sjá má hér var uppblásnum sundbolta kastað inn á völlinn. Hann varð svo fyrir skoti Bent með þeim afleiðingum að Pepe Reina, markvörður Liverpool, náði ekki að koma vörnum við.

„Þetta kemur mér mjög á óvart. Þetta er mjög skýrt í reglunum og mér finnst ótrúlegt að knattspyrnudómari í þessum gæðaflokki, tveir aðstoðardómarar hans og fjórði dómari leiksins hafi ekki séð hvað gerðist og svo tekið rétta ákvörðun."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×