Segist hafa fengið gúmmítékka frá Sun Life 10. nóvember 2009 15:47 Sun Life.
Kennarinn og tónlistarmaðurinn Kári Friðriksson segist hafa fengið gúmmítékka frá séreignalífeyrissparnaðinum Sun Life eftir að hann var ofrukkaður af fyrirtækinu. Sjálfur tók hann út sparnaðinn sinn í apríl-maí á síðasta ári en átta mánuðum síðar fór Sun Life að taka aftur greiðslur út af greiðslukortinu hans. „Þetta var mjög klaufalegt af þeim," segir Kári sem reyndi að stoppa þetta samstundis. Það tókst illa og þurfti hann að hafa samband við sjóðinn í Englandi og tókst þá að leiðrétta mál sín að lokum en ekki fyrr en fyrirtækið hafði tekið þrisvar af kortinu hans. Hann heimtaði þá endurgreiðslu enda var hann hættur í viðskiptum við Sun Life. Eftir allnokkra þrautagöngu að eigin sögn þá fékk hann helming greiddan til baka eða um 150 pund. „Og svo er tékkinn sendur til mín," segir hann en í seinna skiptið fékk hann tékka upp á önnur 150 pund sendan heim til sín frá Sun Life. Það var svo fyrir þremur vikum síðan sem hann fór og skipti tékkanum, á núverandi gengi fékk um það bil 30 þúsund krónur fyrir. „Og í ljós kom að það var engin innistæða fyrir honum," segir Kári en bankinn krefur hann sjálfan nú um endurgreiðslu upp á þrjátíu þúsund krónur vegna gúmmítékkans. Þegar hann leitaði eftir svörum í bankanum fengust þau svör að það hefði ekki verið peningur inn á þeim reikning sem tékkinn var stílaður á. „Þetta er bara pirrandi að virðulegt fyrirtæki geti ekki borgað manni til baka," segir Kári sem er orðinn langþreyttur.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira