Enski boltinn

Owen: Ég mun spila aftur fyrir enska landsliðið

Ómar Þorgeirsson skrifar
Michael Owen.
Michael Owen. Nordic photos/AFP

Framherjinn Michael Owen hjá Manchester United hefur ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans Fabio Capello hjá Englandi undanfarið en er þó sannfærður um að hann hafi það sem þurfti til þess að spila aftur fyrir landsliðið.

Ferill Owen hefur verið litaður af meiðslum síðan hann sló fyrst rækilega í gegn en hann státar þó af því að hafa skorað 40 mörk í 89 landsleikjum fyrir England.

„Ég er alveg jafn hraður núna og ég var fyrir sjö eða átta árum síðan. Meiðslin hafa ekkert breytt því hvað ég hleyp hratt. Ég hef aftur á móti bætt mig mikið sem leikmaður á þessum árum og er með mun betri leikskilning og betri staðsetningar en áður.

Fólk heldur að ég sé orðinn gamall en ég er bara 29 ára gamall og á því enn mikið inni. Ég er því jafnframt sannfærður um að ég muni spila aftur fyrir enska landsliðið," segir Owen í viðtali vði Daily Telegraph.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×