Ögmundi augljóslega stillt upp við vegg 30. september 2009 13:05
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina vera komna í öngstræti og verði í raun að víkja. Hann furðar sig á því að Ögmundur Jónasson hafi sagt af sér ráðherraembætti og gefur sér að hann hafi verið beittur þrýstingi. Núna sé eini maðurinn sem er í takti við þjóðina í Icesavemálinu farinn úr ríkisstjórn. „Í fyrsta lagi er mér ómögulegt að skilja hvað þetta á að leysa vegna þess að sá ráðherrann sem þarna á í hlut er áfram á móti hugmyndum forsætisráðherra um það hvernig halda skuli á málum. Í öðru lagi hefur ríkisstjórnin þarna misst fyrir borð eina ráðherrann sem er í takti við meirihluta þjóðarinnar í þessu máli," segir Bjarni um afsögn Ögmundar. „Ég gef mér það að honum hafi í reynd verið vikið úr ríkisstjórninni. Það er ómögulegt að sjá hversvegna heilbrigðisráðherra ætti að segja af sér við þessar aðstæður og augljóst að honum hefur verið gert ómögulegt að sitja áfram," segir Bjarni. Aðspurður hvernig hann lesi í framhaldið segir Bjarni ekki gott að segja hvernig haldið verði á spilum nú. „Það er hinsvegar áhyggjuefni hversu einbeitt ríkisstjórnin og forsætisráðherra og fjármálaráðherra eru í að vilja ganga að frekari kröfum Breta og Hollendinga í þessu máli frekar en þingið hefur ákveðið í stað þess að standa í lappirnar. Ríkisstjórnin sem gengur í tvígang svona freklega gegn þingvilja í afdrifaríku máli eins og þessu verður að víkja."
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Erlent Fleiri fréttir Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Sjá meira