Enski boltinn

Áhorfandinn sem Bellamy sló fékk þriggja ára bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Craig Bellamy fagnar öðru marka sinna í leiknum gegn United.
Craig Bellamy fagnar öðru marka sinna í leiknum gegn United. Nordic Photos / Getty Images

Jake Clarke, áhorfandinn sem hljóp inn á völlinn að loknum leik Manchester United og Manchester City, hefur verið sektaður og má ekki mæta á völlinn næstu þrjú árin.

Clarke náði að yfirbuga öryggisverði á vellinum og hljóp að Bellamy sem ýtti við honum á móti. Hann va rsvo handtekinn.

Forráðamenn Manchester United sektuðu Clark um 220 pund og hafa bannað honum að koma á Old Trafford næstu þrjú árin.

Bellamy slapp hins vegar við refsingu vegna sinn þátt í atvikinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×