Sundlaugin að kaffæra sveitarfélagið 30. október 2009 05:00 Sveitarstjórnin undirbýr að leita aðstoðar Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. 832 milljóna króna halli varð á rekstrinum í fyrra. Í ár er áætlað að hallinn verði 86 milljónir.
Sveitarfélagið Álftanes þarf að óbreyttu að greiða meira en 200 milljónir króna í leigugreiðslur á næsta ári til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFS) vegna sundlaugar sem tekin var í notkun í sumar, að sögn Kristins Guðlaugssonar, forseta bæjarstjórnar. Leigugreiðslur til Fasteignar á þessu ári eru áætlaðar um 160 milljónir króna. Bæjarstjórnin samþykkti í fyrrakvöld að óska eftir aðkomu EFS að rekstri Álftaness. Sveitarstjórn er samkvæmt lögum skylt að leita til eftirlitsnefndar sveitarfélaga ef hún telur sér ekki unnt að standa í skilum. EFS hefur ekki hafið formleg afskipti af málum Álftaness, að sögn Jóhannesar Finns Halldórssonar, starfsmanns nefndarinnar, en bæjarstjórn þarf að samþykkja á tveimur fundum að leita til nefndarinnar áður en hún tekur til starfa. Boðað hefur verið til aukafundar í bæjarstjórninni í næstu viku til þess að afgreiða málið endanlega. Bæjarstjórnin samþykkti einnig í fyrrakvöld endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir þetta ár. Samkvæmt henni verður 86 milljóna króna halli á rekstrinum. Í fyrra var hallareksturinn 832 milljónir króna. Þá voru tekjurnar um 1.160 milljónir en eftir endurskoðun fjárhagsáætlunar þessa árs er gert ráð fyrir rúmlega 1.300 milljóna króna tekjum í ár. Kristinn Guðlaugsson sagði við Fréttablaðið að samningurinn, sem gerður var árið 2007, við Eignarhaldsfélagið Fasteign væri stór þáttur í vanda sveitarfélagsins þótt fleiri þættir hefðu þar áhrif. Jóhannes Finnur segir EFS ekki munu skoða fjárhag Álftaness formlega fyrr en eftir að málið hafi verið rætt öðru sinni í sveitarstjórninni á sérstökum aukafundi sem boðaður hefur verið í næstu viku. Þegar afskiptin hefjast mun EFS gera sjálfstæða rannsókn á fjárreiðum Álftaness og leggja áherslu á að vinna málið hratt og í samstarfi við sveitarstjórnina. Samkvæmt lögum er heimilt að hækka útsvar og fasteignaskatta um allt að 25 prósent ef sveitarfélag getur ekki „með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum“. Jóhannes Finnur segir ekki tímabært að tjá sig um hvort til slíkra úrræða verði gripið. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira