Traktorsgröfukarl klárar Lyngdalsheiðina 9. nóvember 2009 19:11
Ofvaxinn traktorsgröfukarl, eins og hann kallar sjálfan sig, hefur tekið að sér klára nýja veginn yfir Lyngdalsheiði, og stefnir að því að ljúka verkinu fyrir 1. september næsta haust.Verktakafyrirtækið Klæðning hóf í ágúst í fyrra að leggja þennan fimmtán kílómetra veg milli Þingvalla og Laugarvatns en gafst upp snemma í vor þegar Lýsing hirti vinnuvélarnar vegna vanefnda. Verkið lá niðri í fjóra mánuði þar til í ágústbyrjun að A.Þ. vélaleiga tók upp þráðinn, eftir að Vegagerðin samþykkti að hún tæki yfir verksamning Klæðningar. Sautján manna vinnuflokkur með jafnmargar vinnuvélar keppist nú við svo unnt verði að standa við upphaflega verkáætlun.Auðunn Þór Almarsson, framkvæmdastjóri A.Þ. vélaleigu, segir að verkið hafi gengið mjög vel á þeim þremur mánuðum sem þeir hafi unnið þarna og veðrið hafi leikið við þá. Búið sé að keyra út um 80 þúsund rúmmetra.Raunar voru ýmsir farnir að óttast að verkið myndi stöðvast í einhver ár. En nú vindur því hratt fram, austanmegin eru þeir að nálgast Laugarvatn en vestanmegin vantar enn fjóra kílómetra að Þingvallavegi. Verktakinn segist standa við dagsetningu verkloka, 1. september á næsta ári.Auðunn Þór kemur úr Njarðvík og hann kennir fyrirtækið við upphafsstafina. Það hafi byrjað fyrir tólf árum á einni lítilli traktorsgröfu og nú sé það búið að stækka upp í þetta. Það megi því segja að hann sé ofvaxinn tratorsgröfukarl.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Erlent Fleiri fréttir Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar Sjá meira