Birna vill forystusæti hjá Sjálfstæðisflokknum 14. febrúar 2009 16:54 Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og varaþingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. - 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar í vor. Hún segir Sjálfstæðisflokkinn líkt og aðra flokka verða að axla ábyrgð á núverandi stöðu efnhagsmála þjóðarinnar. ,,Nú eru viðsjárverðir tímar og staða þjóðarbúsins er afleit. Þeir sem eldri eru þekkja þrengingar af þessu tagi en kynslóðin mín á margt ólært. Þjóðin deilir um orsakir hrunsins en ljóst er að margir bera þunga ábyrgð. Þar þurfa stjórnmálaöfl að axla sinn hlut og gangast við þeim mistökum sem gerð hafa verið á liðnum árum. Flokkurinn minn er þar engin undantekning," segir Birna í tilkynningu. Birna segir að þótt margt hefði betur mátt fara hafi hugsjón sjálfstæðismanna um frelsi einstaklingsins til athafna verið grunnurinn að framgangi Íslands og bættum kjörum þjóðarinnar. ,,Við erum vel menntuð og frjálslynd þjóð og grunnstoðir okkar eru sterkar. Við eigum að læra af reynslunni, jafnt því sem vel hefur gengið og því sem miður hefur farið," segir Birna og bætir við að endurreisnarstarfið sé risavaxið en hún vilji taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er framundan. ,,Ég er 43 ára gömul, fædd og uppalin í Reykjavík en hef verið búsett á Ísafirði með hléum í 17 ár. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund og BA prófi í fjölmiðlafræði frá University of Washington í Seattle í Bandaríkjunum. Starfaði um nokkurra ára skeið sem fréttamaður Ríkisútvarpsins á Ísafirði og fréttaritari Rúv í Noregi. Hef setið í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar frá 1998 og lengst af þeim tíma gegnt embætti forseta bæjarstjórnar. Er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og skipa í dag 5. sæti listans. Hef sinnt fjölmörgum nefndastörfum í gegnum tíðina, bæði í héraði og á landsvísu, og er t.a.m. formaður skólanefndar Menntaskólans á Ísafirði og varaformaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. Samhliða stjórnmálum hef ég starfað við ýmsa blaða- og lausamennsku. Maðurinn minn er Hallgrímur Kjartansson, læknir, og við eigum fjögur börn," segir Birna.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira