Könnunin ágætis vísbending Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. febrúar 2009 19:31 Þorgerður K. Gunnarsdóttir. „
Þetta er ágætis vísbending og gott að við erum að bæta við okkur," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um nýjustu skoðanakönnun fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Könnunin sýndi að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka, en á eftir fylgja Samfylkingin og Vinstri grænir. Þorgerður segir þetta vera ágætis niðurstöðu, en bendir þó á að mikilvægasta skoðanakönnunin sé kosningarnar sjálfar sem fara fram í apríl. Mikilvægt sé að haldið sé áfram að vinna í efnahagsmálum og að taka á fjármálum ríkisins með þeim hætti sem fyrri ríkisstjórn var þegar byrjuð á. Þorgerður segist þó hafa áhyggjur af því að því að nýja ríkisstjórnin nái ekki að fylgja eftir ýmsum málum. Svörin sem gefin eru séu loðin og skiptar skoðanir í mikilvægum málum. Þorgerður segir að það séu margar erfiðar ákvarðanir sem bíði. Sérstaklega á sviði ríkisfjármála. Ríkisstjórnin þurfi að hafa þor til að taka ákvarðanirnar. Þá þurfi jafnframt að taka til hendinni til þess að örva atvinnulífið. Nýja ríkisstjórnin hefur ekki upp á marga kosti að bjóða í þeim málum að mati Þorgerðar. Hún gagnrýnir sérstaklega afstöðu ríkisstjórnarinnar til hvalveiða. En Þorgerður segir að jákvæð merki séu á lofti. „Við þurfum að halda áfram að sýna fram á sú efnahagsáætlun sem við lögðum upp með, og þau virðast ætla að fylgja, sé að virka," segir Þorgerður. Hún bendir á að það séu jákvæð teikn á lofti varðandi verðbólguna og efnahagslífið muni batna í kjölfarið á því.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira