63 menn munu djöflast gegn persónukjöri 19. febrúar 2009 13:08
Hópur 63 sérhagsmunagæslumanna mun reyna allan djöfulskap til að koma í veg fyrir að hægt verði að bjóða upp á persónukjör í komandi þingkosningum. Þetta fullyrtu þeir Eiríkur Bergmann Einarsson og Jón Baldvin Hannibalsson um síðustu helgi. Þetta virðist nú vera að koma á daginn. Þrátt fyrir áform nýrrar ríkisstjórnar um að gefa kjósendum frelsi til að raða sjálfir frambjóðendum á lista virðist mikil tregða meðal þingmanna að þetta nái fram. Á frægum fundi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur um síðustu helgi sagði Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur mikilvægt að þrýst yrði á þessa breytingu. Það væri algjört lykilatriði að framboð gætu lagt fram ónúmeraða lista til að koma stjórnmálalífinu úr dauðum höndum flokksstofnana. „Það er bara einn hópur manna sem mun standa gegn þessu, einn hópur manna sem mun með einhverjum anskotans djöfulsskap fram að kosningum koma því þannig fyrir að það verði allt í einu ekki hægt að gera þetta núna heldur ætli þeir að ræða þetta einhverntímann seinna. Þetta er takmarkaður, lítill hópur sérhagsmunagæslumanna. Þeir eru 63 talsins," sagði Eiríkur Bergmann. Jón Baldvin Hannibalsson tók undir þetta og sagðist þekkja af eigin reynslu frá Finnlandi að þar hefði gefist mjög vel að bjóða upp á ónúmeraða lista. Þar væri ekki viðlíka sama auglýsingamennska eins og í pólitíkinni hér. Æskilegt væri að flokksklíkurnar réðu ekki, endurnýjunin væri lykilatriðið og að 63 menn inni á þingi myndu áreiðanlega gera allt til að það verði sem minnst endurnýjun. Og þetta virðist nú vera að koma á daginn. Á fundi flokksformanna í gærkvöldi náðist ekki samstaða um málið. Geir H. Haarde hefur upplýst að Sjálfstæðisflokkurinn að leggist gegn þessu og óvíst er hvort hinir flokkarnir munu knýja fram breytinguna.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Sjá meira