Steingrímur velur alla stjórnarmenn Landsvirkjunar Kristján Már Unnarsson skrifar 19. febrúar 2009 19:00
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, mun sem fjármálaráðherra velja alla fimm stjórnarmenn Landsvirkjunar á aðalfundi eftir sex vikur. Líklegt er að næsta stjórn þurfi bæði að fjalla um nýjar virkjanir og orkusölu til stóriðju, sem Vinstri grænir hafa barist hart gegn. Eftir að ríkið eignaðist Landsvirkjun að fullu hefur það verið á valdsviði fjármálaráðherra að velja fulltrúa ríkisins í stjórn fyrirtæksins. Árni M. Mathiesen ákvað í fyrra að sjálfstæðismaðurinn Ingimundur Sigurpálsson yrði stjórnarformaður og Samfylkingarkonan Bryndís Hlöðversdóttir varaformaður. Enginn frá Vinstri grænum fór í stjórnina og raunar aðeins einn frá þáverandi stjórnarandstöðu, framsóknarmaðurinn Páll Magnússon. En nú hefur Steingrímur J. Sigfússon tækifæri til að koma sínum mönnum að því á næsta aðalfundi Landsvirkjunar, sem áformaður er 3. apríl, kýs hann sem handhafi hlutabréfa ríkisins alla stjórnina. Þá gæti hann einnig ráðið því hver verði næsti forstjóri en Friðrik Sophusson, sem hugðist hætta síðastliðið haust, féllst á að gegna starfinu áfram um sinn, þó ekki lengur en í tvö ár. Meðal verkefna sem líklegt má telja að næsta stjórn Landsvirkjunar fjalli um eru nýjar virkjanir á Þjórsársvæðinu og rannsóknarboranir í Þingeyjarsýslum vegna álvers á Bakka, sem og samningar um orkusölu til stóriðju, allt mál sem Steingrímur og flokksmenn hans í Vinstri grænum hafa gagnrýnt harðlega.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira