Opnar álfakaffihús í Hellisgerði 16. desember 2009 03:30 Græna kaffihúsið Mikil jólastemning ríkir á Græna kaffihúsinu hjá Sigríði sem opnaði í Hellisgerði í Hafnarfirði um helgina. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég missti vinnuna svo núna er ég bara að skapa mér atvinnutækifæri og lífga við þennan garð,“ segir Sigríður Friðriksdóttir sem opnaði um helgina Græna kaffihúsið í lystigarðinum Hellisgerði í Hafnarfirði. „Þetta er pínulítið hús inni í garðinum sem var byggt 1905. Það var upphaflega byggt sem íbúðarhúsnæði og hér bjó fjölskylda og rak kaffihús Oddrúnar. Síðan hefur ekki mikið verið gert þar,“ útskýrir Sigríður sem ætlar að hafa álfa og hulduveruþema á kaffihúsinu auk þess sem hún selur íslenskt handverk. „Þetta er svona álfakaffihús, svolítið dularfullt og öðruvísi. Ragnhildur Jónsdóttir ætlar meðal annars að bjóða upp á lestur á tarot- eða álfaspilum og álfaspilin sem hún hannar verða til sölu, en hún er alin upp í lystigarðinum og sér álfana. Kaffihúsið er svo lítið að það er eiginlega bara svona baðstofustemning þar sem allir sitja saman og það eru gærur á bekkjunum,“ segir hún brosandi. Á matseðli Græna kaffihússins kennir ýmissa grasa. „Ég er til dæmis með belgískar vöfflur, jólaglögg, heitt súkkulaði, stollen-jólabrauð og heilsubúst-drykki. Það er stílað svolítið inn á fólk sem er í göngutúr og getur komið og fengið eða tekið með sér álfabúst. Svo er ég með gott uppáhellt lífrænt kaffi,“ bætir hún við. - ag
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira