Nýja Hvítárbrúin steypt 6. nóvember 2009 18:50
Uppundir 150 manns hafa frá því eldsnemma í morgun unnið að einhverju viðamesta steypuverkefni sem um getur hérlendis, að steypa nýju Hvítárbrúna við Flúðir í Árnessýslu. 32 steypubílar eru í stöðugum ferðum fram á morgundaginn, bæði frá Selfossi og úr Reykjavík.Það var ákveðið að nýta hagstæða veðurspá til að drífa af þetta vandasama verk, að steypa fyrri áfanga þessarar 270 metra löngu brúar. Mannskapurinn byrjaði klukkan fimm í morgun og það verður haldið áfram í einni striklotu fram á morgundaginn, með hvíldum á milli.Um 50 manns steypa á vegum Jáverks og nærri eitthundrað manns á vegum Steypustöðvarinnar, sem varð meira að segja að fá lánaða bíla frá keppunautnum, enda þarf 270 ferðir til að flytja tvöþúsund rúmmetra af steypu um langan veg.Aðeins eru fimm mánuðir frá því smiðirnir hófu brúarsmíðina en áður var Ræktunarsamband Flóa og Skeiða byrjað að leggja veginn að brúarstæðinu. Axel Davíðsson, verkefnisstjóri Jáverks, segir verkið hafa gengið alveg glimrandi og þeir verið ótrúlega heppnir með veður. Fyrir héraðið eru þetta uppgrip því það eru nánast eingöngu Sunnlendingar sem smíða brúna og leggja veginn. Fjórir þeirra búa á Flúðum og þeir sigla á báti yfir Hvítá í vinnuna á fimm mínútum í stað þess að keyra 35 kílómetra leið á hálftíma.Fyrir steypusala eru þetta verk helsta glætan á árinu. Hannes Sigurgeirsson, forstjóri Steypstöðvarinnar, segir árið hafa verið erfitt, - búið að fækka mannskap og tækjum, en nú sjái hann fram á viðsnúning. Hann horfir vonaraugum til stórframkvæmda, við virkjanir og álver.Þegar búið verður að rífa steypumótin frá verður Hvítá veitt undir þennan hluta brúarinnar og síðari áfanginn einnig smíðaður á þurru. Áformað er að umferð verði hleypt á brúna eftir um það bil tíu mánuði, síðla næsta sumars.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira