Þrjár systur með jólatónleika 17. desember 2009 06:00 samrýndar systur Systurnar Þórunn, Ingibjörg og Dísella Lárusdætur halda jólatónleika í Salnum í Kópavogi. fréttablaðið/valli „
Við höfum ekki sungið saman í dágóðan tíma og þetta er alveg æðislegt,“ segir leik- og söngkonan Þórunn Lárusdóttur. Hún syngur ásamt systrum sínum Ingibjörgu og Dísellu á jólatónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudagskvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar þeirra síðan þær gáfu út plötuna Jólaboð árið 2004, enda hefur Dísella verið búsett í Bandaríkjunum. „Núna var hún að syngja í Óperunni. Það gekk svo vel að það voru aukasýningar, þannig að við ákváðum að smella í tónleika fyrst það var hægt,“ segir Þórunn. „Þetta er rosalega skemmtilegt. Við höfum allar þroskast síðan við vorum að vinna saman síðast. Dísella var ennþá í námi þá og núna er hún orðin frábær óperusöngkona. Við njótum góðs af því,“ segir hún og hlær. „Við erum allar að vinna í okkar verkefnum en það er gaman að hittast og syngja svolítið saman. Maður kemur inn í allt aðra orku og það er bara gaman á æfingum hjá okkur.“ Þórunn leikur í söngleiknum Oliver! sem verður frumsýndur á annan í jólum, Dísella er önnum kafin í Íslensku óperunni og Ingibjörg var að ljúka við síðasta jólaprófið sitt í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Þórunn lofar skemmtilegum jólatónleikum á föstudagskvöld sem hefjast klukkan 21. „Við syngjum fullt af jólalögum, bæði svolítið poppuð og hátíðleg líka. Svo erum við með skemmtilegar útsetningar sem eru svolítið ögrandi fyrir okkur. Þetta er mjög skemmtilegt prógram og fólk á eftir að labba út í góðu jólaskapi.“ - fb
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira