Styttist í Bjarnfreðarson 17. desember 2009 04:00 Kíkir í bíó Bjarnfreðarson verður forsýnd í Sambíóunum um helgina og þá verður loksins bundinn endahnútur á sögu Vaktar-þríeykisins.
Fáheyrt er að beðið sé eftir íslenskri bíómynd með jafn mikilli eftirvæntingu og beðið er eftir Bjarnfreðarsyni.Myndin verður forsýnd um helgina í Sambíóunum og verður miðasala á sýningarnar þar. Myndin tekur upp þráðinn þar sem Fangavaktin skildi við hana eða þegar Georg losnar úr fangelsi og reynir að hefja nýtt líf. Jafnframt verður brugðið upp svipmyndum af æsku Georgs sem var í meira lagi undarleg og stjórnað af baráttukonunni Bjarnfreði. Aðstandendur Bjarnfreðarsonar hafa verið duglegir við að beita ýmsum óhefðbundnum meðulum í kynningu á myndinni. Samskiptasíðan Facebook hefur verið notuð óspart og á myndin nú fjórtán þúsund aðdáendur. Þeir bíða væntanlega allir spenntir eftir því að berja myndina augum. Þá mun Pétur Jóhann Sigfússon bregða sér í gervi Ólafs Ragnars og stjórna morgunþætti á FM 957 á föstudaginn. Ástæðan er víst sú að Ólafur Ragnar er ráðinn á útvarpsstöðina sem kynnir í myndinni um Bjarnfreðarson. Myndin verður síðan frumsýnd formlega hinn 26. desember en í aðalhlutverkum eru sem fyrr áðurnefndur Pétur, Jón Gnarr og Jörundur Ragnarsson. Leikstjóri er Ragnar Bragason en hann hefur gefið það út, formlega, að þetta verði síðasti naglinn í líkkistu þessa fyrirbæris. Sambíóin forsýna aðra mynd um helgina. Það er The Princess and the Frog og er teiknimynd frá Disney-risanum. Myndin markar nokkur tímamót því þetta er fyrsta myndin í ansi langan tíma þar sem notast er við gömlu teiknimyndatæknina en ekki tölvutækin eins og hátturinn hefur verið á undanfarin ár. Það virðist hafa skilað sér því myndin er tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna. - fgg
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira