Stjarnfræðilegur Cameron 17. desember 2009 05:00 avatar Camerons Einhverjir kynnu að telja Cameron hafa snert af mikilmennskubrjálæði, hann lýsti því jú yfir sjálfur að hann væri konungur heimsins á Óskarverðlaununum um árið. Nýjasta kvikmynd hans, Avatar, er mikið tækniundur, nýrri kvikmyndatökutækni er beitt sem ýmsir telja að muni breyta ásýnd kvikmyndanna næstu áratugina. Nordic Photos/afp
Peningamönnum í Hollywood rennur kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þeir heyra James Cameron nefndan á nafn. Kannski er það engin furða, því Cameron hikar ekki við að reyna að breyta kvikmyndasögunni einn síns liðs. Nýjasta kvikmynd James Cameron, Avatar, hefur framkallað svipaða spennu, ef ekki meiri, og þegar fyrsta Hringadróttins-kvikmyndin var frumsýnd. Og voru kvikmyndaáhugamenn þá eins og sjö ára börn klukkan hálfsex á aðfangadagskvöldi. Myndin gerist á plánetunni Pandora árið 2154 og segir frá leitarflokki sem hyggst finna auðlindir plánetunnar og rannsaka hvort hægt sé að nýta þær í þágu jarðarbúa. Andrúmsloftið á Pandora er einstakt, dýralífið engu líkt og þar ræður ríkjum þjóðflokkur sem nefnist Na’vi. Þeir sem tilheyra honum búa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt, eru þrír metrar á hæð og hafa ótrúlega hreyfigetu. Til að mannfólkið geti komist í tæri við þessa plánetu upp á eigin spýtur hefur vísindahópur leiðangursins hannað sérstaka genabreytingu sem gerir þá í hópnum líka Na’vi. Fremstur í flokki er hermaðurinn Jake Sully sem er lamaður fyrir neðan mitti eftir skotárás en með genabreytingunni er honum hins vegar gert kleift að ganga upp á nýtt. Sully heillast af þessum bláa þjóðflokki og þegar Na’vi-menn gera sér grein fyrir innrás mannfólksins undirbúa þeir vörn plánetunnar og Sully þarf að ákveða hvorum megin hann vill vera. Cameron sem guð Orðið Avatar er tekið úr sanskrít og þýðir umbreyting guðlegrar veru í manneskju. Það þarf ekki að koma neinum kvikmyndaáhugamanni á óvart að James Cameron skuli einmitt hafa valið þetta orð. Hann kemur nefnilega mörgum þannig fyrir sjónir að vilja leika Guð hvað hvíta tjaldið varðar. Enginn opinber kostnaður hefur verið gefinn upp í kringum Avatar en margir sérfræðingar vestan hafs skjóta á 500 milljónir dala sem líklega upphæð. Slíkar tölur eru náttúrlega stjarnfræðilegar á íslenskan mælikvarða miðað við núverandi gengi, sem gerir kostnaðinn 63 milljarða króna samkvæmt myntbreytu Arion banka. True Lies, önnur mynd Camerons, fékk þann stimpil að vera „dýrasta mynd kvikmyndasögunnar“ enda fékk leikstjórinn að láni orrustuþotu frá bandaríska hernum. Leigan á þeim er víst engir smáaurar. Brýr voru þar að auki sprengdar og svo var Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverkinu. Ekki má heldur gleyma stórmyndum á borð við The Abyss, Terminator-kvikmyndunum tveimur sem Cameron leikstýrði og svo Aliens, sjálfstæðu framhaldi geimverukvikmyndar Ridley Scott frá 1978. Cameron kann þá list, sennilega manna best, að búa til alvöru stórmyndir. Titanic-æðiðEn það var með Titanic sem Cameron varð hálfgerður kóngur, eins og hann sagði reyndar sjálfur þegar hann rústaði Óskarinn fyrir tólf árum. Hún er í níunda sæti yfir dýrustu kvikmyndir sögunnar og Cameron breytti með henni hugmyndum Hollywood um hvernig mætti gera kvikmynd. Hann skaut Kate Winslet og Leonardo DiCaprio svo hátt upp á stjörnuhimininn að þau verða alla ævi að ná sér þaðan niður og hann varð sjálfur hálfgerð goðsagnapersóna. Titanic var Cleopatra nýrrar kynslóðar. Skipslíkanið af þessu mikla fleyi heillaði heimsbyggðina og þótt flestir fái grænar bólur þegar þeir heyra Celine Dion syngja My Heart Will Go On er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd að Titanic fékk hvorki á sig brotsjó né sigldi á ísjaka heldur komst í örugga höfn magnaðrar miðasölu. Áhorfendur um allan heim greiddu tvo milljarða dala. Myntbreyta Arion banka lýgur ekki: 253 milljarðar íslenskra króna. Bara í miðasölu. TækninýjungarOf langt mál færi í að telja upp allar þær tækninýjungar sem hafa verið þróaðar í kringum Avatar. En nefna má að Cameron skrifaði handritið að Avatar 1994 en sagðist ekki ætla að gera hana fyrr en kvikmyndatækninni hefði fleygt nægjanlega mikið fram til að hægt væri að gera hana eins og hann vildi. Cameron þróaði sérstakar tökuvélar fyrir myndina og sviðsmynd sem gerir leikurunum kleift að komast í tæri við tæknibrellurnar sjálfar. Myndin verður sýnd í „venjulegri“ vídd og svo þrívídd en þeir sem hafa séð brot úr myndinni í báðum gæðum segja það vera eins og að líkja saman eplum við appelsínur; þrívíddarútgáfan sé svo sannarlega eitthvað nýtt í kvikmyndatækninni og sýni það og sanni að bíóheimurinn geti þróast áfram. Og hvað svo, kynni einhver að spyrja. Er möguleiki fyrir Cameron að seilast enn nær sólinni? Og fer þá ekki fyrir honum eins og Íkarusi. Cameron trúir því auðvitað ekki sjálfur, hann hefur lýst því yfir að ef Avatar gangi vel muni tvær framhaldsmyndir líta dagsins ljós. Síðan hefur hann verið að vinna að kvikmynd af svipaðri stærðargráðu sem á að rata í kvikmyndahús eftir tvö ár. Allavega er hægt að bóka eitt: Cameron mun ekki leikstýra rómantískri gamanmynd í litlu sveitaþorpi með Jennifer Aniston og Mark Ruffalo í aðalhlutverki, svo mikið er víst.
Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Fór til Tyrklands í hárígræðslu: „Maður finnur fyrir potinu allan tímann“ Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Sjá meira