Fjögur og hálft ár fyrir að nauðga og lemja barnsmóður sína 23. febrúar 2009 13:45
Karlmaður var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir nauðgun og hrottalega líkamsárás gagnvart barnsmóður sinni. Honum var einnig gert að greiða miskabætur að upphæð 1.200.000 krónur. Árásin var nokkuð harkaleg og var tekið tillit til þess í dómnum en konan hlaut mikla áverka. Í ákærunni er manninnum gert að sök að hafa nauðgað konunni með því að hafa ráðist að henni í mars á síðasta ári, hrint henni í stofugólfið þar sem hann sparkaði í hana. Einnig veitti hann henni fjölda hnefahögga í höfuð og líkama, reif í hár hennar, sló höfði ítrekað í gólfið og þvingaði hana til samræðis og endaþarmsmaka. Einnig var hann ákærður fyrir líkamsárás að morgni sama dags en þá réðsist hann gegn henni í eldhúsi og sló hana mörgum hnefahöggum, einkum í kvið, bak og höfuð, auk þess að trampa á konunni þar sem hún var í hnipri á eldhúsgóflinu. Í ákæru segir að við þetta hafi hún hlotið fjölda marbletta á báðum handleggjum og vinstri fótlegg, glóðarauga á báðum augum, mar á nefi, hægra eyra og gagnaugum, bólgu á efri vör og sprungu í slímhúð þar fyrir innan, brot úr tönn í efri kjálka vinstra megin, kúlu á enni og margar kúlur í hársverði, mikil eymsli á milli herðablaða, yfir hægra herðablaði og í kviði. Í dómnum segir að sannað sé að konan hafi orðið fyrir líkamsárás og nauðgun af hendi ákærða, sem getur um ókomna framtíð valdið henni erfiðleikum. Með hliðsjón af öllum atvikum, líkamlegum og andlegum afleiðingum líkamsárásarinnar og vættis brotaþola fyrir dómi, þykja miskabætur til hennar hæfilega ákveðnar 1.200.000 krónur með vöxtum.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna Segist hafa áhyggjur af stöðunni í Evrópu Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Sjá meira