Innlent

Íbúar fá ekki að snúa heim í kvöld

Aftakaveður hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum síðan í gærkvöldi og hafa hús verið rýmd þar sem hætta er á snjóflóðum. Íbúar hosanna sem hafa verið rýmd fá ekki að snúa aftur heim fyrr en í fyrsta lagi á morgun.

Hættustigi vegna snjóflóðahættu í Bolungarvík var lýst yfir um kvöldmatarleytið í gær og voru fimm hús þá rýmd. Nokkur snjóflóð féllu í grennd við Ísafjörð og Bolungarvík í nótt og í morgun. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið.

Blindhríð og skafrenningur hafa verið á svæðinu í allan dag. Vegirnir um Hnífsdal, Óshlíð og Súðavíkurhlíð hafa verið lokaðir frá því í gærkvöldi.

Um miðjan dag voru nokkrir sveitabæir á norðanverðum Vestfjörðum rýmdir vegna snjóflóðahættu og atvinnuhúsnæði á Ísafirði.

Ekki er vitað um slys á fólki. Ökumaður slapp hins vegar með skrekkinn eftir að hann missti stjórn á bíl sínum þar sem hann sá ekki út úr bílnum vegna aftakaveðurs og ók á íþróttahúsið á Ísafirði. Bíllinn er mikið skemmdur.

Veður enn vont á svæðinu. Þeir tuttugu og sex íbúar sem búa í húsunum sem hafa verið rýmd fá því ekki að snúa aftur til síns heima fyrr en í fyrsta lagi á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×