Áherslan á hvernig en ekki hvað 2. september 2009 04:00 Sló í gegn. Uppsetning Þorleifs á Rómeó og Júlíu í St. Gallen sló í gegn og kemur nú til Íslands. Mynd/Filippía „
Ég er að fara að gera margt í ár, en það er fátt sem ég hlakka meira til en að vera viðstaddur þetta festival,“ segir Þorleifur Örn Arnarsson um Rómeó og Júlíu á þremur sviðum, litla hátíð Borgarleikhússins í maí. Uppsetning St. Gallen og Þorleifs á verkinu fer þá á svið samhliða metaðsóknarsýningu Vesturports og margverðlaunaðri uppsetningu Oskaras Korsunovas. „Í þessum stærri löndum eins og Þýskalandi, þar sem ég er að vinna aðallega, er maður vanur því að sjá margar uppsetningar á sama verkinu. Heima erum við með svo fá leikhús og verk eru leikin með svo löngu millibili að það er ekki hægt að bera sýningarnar að neinu leyti saman. Að vera með svona festival held ég að geti gefið íslenskri leikhúsmenningu ofboðslega mikið. Áherslan færist á sýn listamannanna á samfélagið í gegnum verkin frekar en verkin sjálf.“ Þorleifur leikstýrir Eilífri óhamingju sem á að frumsýna á Litla sviðinu í mars. „Ég var í miklum samræðum við þá í Borgarleikhúsinu út af Eilífri óhamingju á svipuðum tíma og ég var að setja þetta upp. Þá kviknaði þessi hugmynd hjá þeim, af því að Oskaras er að koma að leikstýra hjá þeim líka.“ Frábærar viðtökur á uppsetningu Þorleifs spilltu án efa ekki fyrir vali Borgarleikhússins. Í sýningunni keyrir hann að eigin sögn upp erótík og léttleika til að „tragedían geti fært áhorfandanum ástina“. Eru persónur dregnar skýrum dráttum sem og samböndin þeirra á milli á annars auðu sviði. Hjá Litháíska Borgarleikhúshópnum eru Rómeó og Júlía hins vegar af bakaraættum og verða stóru orðin magnþrungin undir stórbrotinni umgjörð og yfir átökum um deig, flórsykur og hveiti. Sýningu Vesturports þekkja landsmenn en þar blandar leikhópurinn saman sirkus og leikhúsi við þýðingu Hallgríms Helgasonar. - kbs
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira