Geir segir allt í góðu á stjórnarheimilinu 6. janúar 2009 12:04 Geir H. Haarde, forsætisráðherra.
Forsætisráðherra segir stjórnarsamstarfið sterkt og vísar því á bug að formaður Samfylkingar sé að finna átyllu til að slíta því með ummælum um Evrópusambandið. Mismunandi áherslur um ESB séu ekki nýjar af nálinni. Um áramótin opnaði Geir Haarde forsætisráðherra á möguleikann um að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um það hvort farið yrði í viðræður um Evrópusambandsaðild. Ef það yrði samþykkt myndi þjóðin í annarri atkvæðagreiðslu kjósa um hvort Ísland myndi ganga inn í Evrópusambandið. Málið verður tekið fyrir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, en um það eru afar skiptar skoðanir meðal flokksmanna. Formaður Samfylkingar hefur ítrekað lýst því yfir að flokkur hennar vilji láta kjósa beint um aðild að ESB. Verði niðurstaða landsfundar Sjálfstæðisflokks á öðrum nótum, sé allt eins gott að efna til þingkosninga um leið og þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um viðræður við sambandið. Þetta hafa margir, einkum Sjálfstæðismenn, talið að sé átylla Samfylkingar til stjórnarslita. Forsætisráðherra vísar því á bug og segir að ekki sé verið að finna átyllu til að slíta samstarfinu. Stjórnmálafræðingar hafa hins vegar bent á að augljósir brestir séu í stjórnarsamstarfinu. Ýmis ummæli flokksmanna styðji það, auk þess sem áherslur í Evrópusambandsmálum séu afar ólíkar. Það síðarnefnda segir forsætisráðherra að hafi alltaf legið fyrir, verið sé að vinna í Evrópusambandsmálunum á vettvangi beggja flokka og vonast sé til að komist verði að sameiginlegri niðurstöðu þegar þeirri vinnu lýkur. Geir segir ennfremur að stjórnarsamstarfið þoli það að það séu misjafnar skoðanir á stórum málum.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Fleiri fréttir Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Sjá meira