Hefur áhyggjur af fjölgun barnaverndatilkynninga Telma Tómasson skrifar 22. september 2009 18:31
Tilkynningum til barnaverndaryfirvalda hefur fjölgað mikið á milli ára. Verulegt áhyggjuefni, segir forstjóri Barnaverndarstofu. Samkvæmt nýrri samantekt Barnaverndarstofu hefur tilkynningum til barnaverndaryfirvalda á landinu öllu fjölgað um 20 prósent fyrstu sex mánuði þessa árs, miðað við sama tímabil 2008. Var tilkynnt um tæp fjögur þúsund atvik á fyrri helmingi síðasta árs, en um 4.740 á þessu ári og hafa tilkynningar aldrei verið fleiri. Einnig hefur fjöldi barna sem tilkynnt er um aukist verulega á milli ára, en oft eru fleiri tilkynningar en ein á bak við hvern einstakling. Sýna tölur að á fyrri hluta þessa árs eru börnin tæp fjögur þúsund, en það er fjölgun um 500 börn frá því í fyrra. Flestar tilkynningar í ár eru vegna áhættuhegðunar barna eða tæp 47 prósent, um 34 prósent vegna vanrækslu á börnum og 19 prósent vegna ofbeldis gegn börnum. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir þróunina verulegt áhyggjuefni, en hann telur lakari aðstæður fjölskyldna í kjölfar bankahrunsins skýra fjölgun tilkynninga að hluta. Einnig segir hann meiri meðvitund gagnvart aðstæðum barna skila sér, en mikil aukning sé á tilkynningum frá skólum og leikskólum, þar sem hegðunarvandi barna komi fyrst fram. Athygli vekur að tilkynningum fjölgar mest í þéttbýlisstöðum, en lítið sem ekkert í dreifbýlinu. Telur Bragi það vera hugsanlega vísbendingu um að atvinnuleysi, sem sé meira í stærri byggðarkjörnum, sé að koma af meiri þunga niður á fjölskyldum þar en annars staðar.
Tengdar fréttir Fleiri börn þurfa vistun á meðferðarheimilum Umsóknum um vistun á meðferðarheimilum Barnaverndastofu hefur fjölgað umtalsvert á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Umsóknir voru 78 á fyrstu sex mánuðum ársins en í fyrra voru þær 68 á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um tilkynningar til barnaverndanefnda sem Barnaverndastofa opinberaði í dag. 22. september 2009 20:33 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira
Fleiri börn þurfa vistun á meðferðarheimilum Umsóknum um vistun á meðferðarheimilum Barnaverndastofu hefur fjölgað umtalsvert á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Umsóknir voru 78 á fyrstu sex mánuðum ársins en í fyrra voru þær 68 á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um tilkynningar til barnaverndanefnda sem Barnaverndastofa opinberaði í dag. 22. september 2009 20:33