Aron Einar: Ég er ekki brotinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. október 2009 11:47 Aron Einar Gunnarsson fagnar marki í leik með Coventry í fyrra. Jordan Henderson, núverandi leikmaður Sunderland, fagnar með honum. Nordic Photos / Getty Images
Aron Einar Gunnarsson segir í samtali við Vísi að hann telji það ólíklegt að hann sé fótbrotinn og hann verði búinn að jafna sig eftir 2-3 vikur. Hann var borinn af velli í leik Coventry og Sheffield Wednesday í gær og fluttur upp á sjúkrahús. „Þar hitti ég lækni sem skoðaði mig lítillega og sagði að ég væri brotinn," sagði Aron. „Því leist mér alls ekki á þetta." „En ég fór svo í myndatöku og þá kom í ljós að ég var ekki brotinn. Það er hins vegar spurning hvort það hafi komið sprunga í beinið og mun ég fara í aðra myndatöku á annað hvort miðvikudaginn eða fimmtudaginn þegar bólgan verður farin." „En ég held að ég sé bara með snúinn ökkla og muni jafna mig á 2-3 vikum. Ég veit svo sem ekki hvort að liðböndin í ökklanum hafi eitthvað skaddast en ég vona ekki." Aron Einar var tæklaður af leikmanni Wednesday með fyrrgreindum afleiðingum. „Ég stóð í vinstri löppina þegar hann klippti mig niður. Ég gat því ekki hoppað upp úr tæklingunni. En þetta leit ekkert sérstaklega vel út, sérstaklega þar sem ég var borinn af velli með súrefnisgrímu á andlitinu. Þetta var þó ekki það slæmt og ég var fljótur að taka hana af mér," sagði hann í léttum dúr. „Ég vona auðvitað innilega að þetta eru ekki alvarleg meiðsli en þau eru óneitanlega hluti af fótboltanum. Ég hef verið heppinn hingað til og aldrei meiðst illa," sagði Aron.
Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti LeBron James yfirgefur Lakers Körfubolti Frakkland - Svíþjóð | Fellur annar risi úr leik? Fótbolti Fleiri fréttir Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Sjá meira