Vill leysa Magna af hólmi 12. september 2009 04:00 fimur kokkur Björgvin Jóhann er álíka fimur í eldhúsinu og þegar hann var upp á sitt besta með Á móti sól. „
Þeir eiga alveg nokkur góð ár eftir, það er mín skoðun. Þeir eru búnir að sýna og sanna að þeir eru eitt sterkasta bandið í dag," segir Björgvin Jóhann Hreiðarsson, kokkur og fyrrverandi söngvari Á móti sól. Tíu ár eru liðin síðan Björgvin yfirgaf sveitina og Magni Ásgeirsson tók við. Af því tilefni ætlar Á móti sól að spila í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum í kvöld. Þrátt fyrir að hljómsveitin, sem er upprunalega frá Selfossi og Hveragerði, hafi selt plötur sínar í bílförmum eftir að Björgvin hætti segist hann ekki sjá eftir neinu. „Ég hætti bara af mínum ástæðum og sé ekki eftir því, þó að þetta hafi verið rosalega skemmtilegur tími. Ég var að reyna að mennta mig í öðru fagi en það gekk ekki og fjórum árum seinna ákvað ég að drífa mig í þetta og prófa," segir hann og á þar við kokkanámið sem hann lauk við á síðasta ári. Starfar hann núna sem kokkur á Gullfoss Kaffi og er sáttur við sitt. „Ég flutti heim aftur og bý nú á Reykholti í Biskupstungum. Ég er fjölskyldumaður og bara mjög sáttur." Björgvin söng í fjögur ár með Á móti sól og tók upp með þeim plöturnar Gumpurinn og 1999. Vinsælasta lag hans er vafalítið Djöfull er ég flottur. Hann útilokar ekki að stíga aftur á svið með sínum gömlu félögum og leysa Magna af hólmi, að minnsta kosti í smá stund. „Mér fyndist ekki úr vegi að strákarnir rigguðu upp öllu gamla genginu, því það er töluvert af fólki búið að rúlla í gegnum þetta band, og héldu tónleika í sinni heimabyggð annaðhvort á þessum tímamótum eða á næsta ári á fimmtán ára afmælinu. Það væri mjög gaman." - fb
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Muniz skilinn Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sjá meira