Inglourious Basterds-leikari í kvikmynd Valdísar Óskars 12. september 2009 07:00 Stórstjarna í Þýskalandi <B>Daniel Brühl</B> er ákaflega þekktur í sínu heimalandi en hann lék stórt hlutverk í Tarantino-myndinni Inglourious Basterds sem frumsýnd var fyrir nokkru í íslenskum kvikmyndahúsum. Brühl og <B>Nína Dögg Fillippusdóttir</B> eru vinir eftir að þau voru Shooting Stars í Berlín árið 2003 en leikhópurinn Vesturport verður í stórri rullu í myndinni. „
Hann er mjög spenntur fyrir því að koma hingað, hefur lengi langað að koma til Íslands,“ segir Davíð Óskar Ólafsson, einn þriggja framleiðenda kvikmyndarinnar Kóngavegur 7 sem Valdís Óskarsdóttir leikstýrir. Í vikunni var gengið frá samningum við þýska leikarann Daniel Brühl um að hann myndi leika stórt hlutverk í íslensku myndinni sem fjallar um hversdagsleikann í hjólhýsahverfi. Brühl hefur skotist upp á stjörnuhimininn að undanförnu fyrir frammistöðu sína í Tarantino-myndinni Inglourious Basterds en hann leikur stórt hlutverk í kvikmynd sem sýnd er inni í þeirri ágætu mynd. Tökur á Kóngavegi 7 hefjast í næstu viku en myndarlegt hjólhýsahverfi er nú að rísa fyrir myndina. Davíð vildi ekki gefa upp nákvæma staðsetningu á því svæði af ótta við skemmdarverk og þjófnaði. Davíð segir þetta hafa krafist mikillar skipulagningar enda sé Brühl stórstjarna í sínu föðurlandi og ákaflega eftirsóttur. Inglourious Basterds hafi heldur ekki skemmt fyrir framanum. „Hann er í tökum á þýskri kvikmynd um svipað leyti en við lögum okkur að þeim tíma. Hann verður smá tíma með okkur í þessari viku, svo flýgur hann til Berlínar og kemur síðan aftur.“ Eins og kom fram í Fréttablaðinu fyrir skömmu er leikhópurinn Vesturport í stóru hlutverki í myndinni og einn meðlimur hópsins hafði töluvert mikið um það að segja að Brühl tók hlutverkið að sér. „Þannig var með máli vexti að Nína Dögg Filippusdóttir og hann voru svokallaðar Shooting Stars í Berlín 2003 og þar kynntust þau. Þegar upp kom sú pæling að fá evrópskan leikara í myndina stakk Nína upp á honum og hann reyndist meira en lítið til í að vera með. Hann hafði lengi langað til að vinna með Nínu og Vesturporti.“ Davíð viðurkennir að nærvera Brühls eigi eflaust eftir að liðka enn frekar fyrir dreifingarsamningum erlendis og þá sér í lagi í Þýskalandi þar sem íslensk menning hefur löngum átt sína aðdáendur. „Þetta skemmir ekkert fyrir og opnar okkur vissulega ýmsar dyr fyrir dreifingu myndarinnar erlendis.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira