Sindri Eldon genginn í Dynamo Fog 12. september 2009 06:00 Meira indí, Meiri groddi! Dynamo Fog: Sindri Eldon, Jón Þór Ólafsson og Arnar Ingi Viðarsson.mynd/Ernir Eyjólfsson „
Hann er týndi hlekkurinn sem vantaði í bandið," segir Jón Þór í hljómsveitinni Dynamo Fog um Sindra Eldon, sem nú hefur gengið til liðs við sveitina. „Við náðum satt að segja aldrei almennilega saman með Axel, en nú er tríóið fullkomnað." Sindri spilaði sem kunnugt er með Dáðadrengjum og hefur sungið með pönkbandinu Slugs auk þess að semja músík einn síns liðs. Hljómsveitin Dynamo Fog hefur vakið nokkra lukku síðustu misserin, þá helst fyrir „Let's rock and roll", sem er svo grípandi stuðrokkari að það var notað í handboltaauglýsingu á Ríkissjónvarpinu. Sindri kemur í stað Axels „Flex" Árnasonar, sem yfirgaf bandið og spilar nú á trommur með Jeff Who? - „Tja, hvað heitir það? Listrænn ágreiningur?" segir Jón Þór og hlær. Það kom sér illa að Axel gekk úr skaftinu því hljómsveitin var búin að taka upp níu lög af tíu fyrir fyrstu plötuna sína. „Ég held að þær upptökur verði nú bara að safna ryki því Axel vill fá ákveðna upphæð fyrir þær og hana eigum við ekki til," segir Jón Þór, en Axel er upptökumaður og rekur sitt eigið hljóðver. „Þetta verður bara tekið upp frá grunni enda er bandið breytt með tilkomu Sindra, það er miklu meira indí í gangi og meiri groddi." Jón Þór segir „nýjan singúl" væntanlegan bráðlega, bandið verði á Iceland Airwaves og „svo verður bara spilað á öllum sóðakömrum á landinu". - drg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira