Bolvíkingur með klúrið jólalag 10. desember 2009 05:00 Einar hefur sent frá sér jólalagið Jólatól sem fjallar um jólasvein sem er langt frá því að vera hreinn sveinn. „
Það er óþarfi að syngja alltaf í kringum grautinn. Af hverju ekki að fara bara beint þar sem hann er heitastur?“ segir bolvíski trúbadorinn Einar Örn Konráðsson. Hann hefur sent frá sér lagið Jólatól sem er heldur klúrt og fjallar um jólasvein sem er langt frá því að vera hreinn sveinn. „Þetta er gamalt lag frá mér sem hét áður hringvöðvalagið. Ég samdi bara nýjan jólatexta ofan í það og var enga stund að því. Ég tók þetta upp á rúmlega klukkustund heima hjá mér, notaði hringluna hjá syni mínum og henti þessu inn,“ segir Einar Örn, sem setti lagið rakleiðis inn á Youtube- og Facebook-síðurnar. Ástarvikan hefur verið haldin í Bolungarvík í ágúst undanfarin ár við góðar undirtektir. Þrátt fyrir að hafa gefið út þetta klúra jólalag vill Einar ekki meina að allir Bolvíkingar séu með kynlíf á heilanum. „Ég held ég skeri mig svolítið úr varðandi það opinberlega. Ég held að hinir haldi sig bara út af fyrir sig inni í herbergi. Þetta liggur svolítið létt fyrir mér að semja einhverja kúk- og pissbrandara inn í textana.“ Einar stundar nám í Keflavík um þessar mundir en fer alltaf vestur um páskana og spilar fyrir heimamenn í Kjallaranum. Hann hefur verið trúbador í rúm tíu ár og gefið út eina plötu, Lognið á undan storminum. Einnig vann hann trúbadorakeppni Suðurnesja fyrir nokkrum árum. En er hann alltaf svona klúr?„Ég er svona tvískiptur. Annars vegar er ég þessi klúri Einar Örn en síðan er alveg hinn póllinn á móti. Þessi dúnmjúki Einar sem er alveg með ballöðurnar á kristaltæru.“ - fb
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Sjá meira