Varð til af einskærri nauðsyn 10. desember 2009 04:30 Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir hannaði sérstakt fjölskyldudagatal. Hér er hún ásamt börnum sínum.fréttablaðið/gva „
Hugmyndin varð eiginlega til af einskærri nauðsyn. Ég er með fimm manna heimili, maðurinn minn er lögreglumaður og vinnur vaktavinnu og starfar einnig sem körfuboltadómari. Svo á ég tvo syni sem æfa fótbolta og fimleika og nú nýlega bættist þriðja barnið við. Mér fannst orðið alltof erfitt að fylgjast með hverjir voru hvar og hvenær og ákvað að gera dagatal til að hjálpa mér við skipulagið,“ útskýrir Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir sem hannaði Fjölskyldudagatalið. Dagatalið er sérstakt fyrir þær sakir að sex reitir eru við hvern dag ársins sem þýðir að hægt er að færa inn stundaskrá allra fjölskyldumeðlima daglega. Upphaflega ætlaði Kolbrún Ösp aðeins að gera eitt dagatal til að létta sjálfri sér lífið en þegar hún varð vör við áhuga fólks á dagatalinu ákvað hún að láta prenta fleiri. „Ég var í fæðingarorlofi á þessum tíma og skráði mig í fjarnám í grafískri miðlun á meðan svo ég gæti hannað útlit dagatalsins sjálf. Svo lét ég Odda prenta þetta út fyrir mig og gorma.“ Þegar Kolbrún Ösp er innt eftir því hvort fjölskyldulífið gangi betur fyrir sig núna segir hún svo vera. „Jú, fjölskyldulífið gengur mun betur. Það er minna um árekstra og við mætum öll á réttum tíma þangað sem við eigum að mæta,“ segir hún og hlær. Hægt er að nálgast Fjölskyldudagatalið í gegnum vefsíðuna idagsinsonn.is auk þess sem hægt er að kaupa það í versluninni A4. Hluti af ágóða sölunnar rennur til Fjölskylduhjálpar Íslands. - sm
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira