Látlaus vinna sjö daga vikunnar í sex ár 11. desember 2009 04:15 Dan Brown í Róm sem er sögusvið engla og djöfla. Hin kirkjulega og guðfræðilega veröld tákna og miða hefur reynst honum drjúgt söguefni. Fréttablaðið/Getty Images
Dan Brown er án efa í flokki vinsælustu rithöfunda allra tíma. Bók hans Da Vinci-lykillinn hefur selst í yfir áttatíu milljónum eintaka á heimsvísu og nýjasta bók hans, Týnda táknið, skaust beint í efsta sæti metsölulista New York Times þegar hún kom út nú í haust og sat þar samfleytt í sjö vikur. Bókin kom út á íslensku í lok nóvember hjá bókaforlaginu Bjarti og hefur hlotið fádæma góðar viðtökur hjá íslenskum lesendum. Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir hitti Dan Brown í miðborg Manhattan í síðustu viku og ræddi við hann um ritstörf hans, nýju bókina og áhuga hans á Frímúrarareglunni. Dan Brown segist langa að heimsækja Ísland og telur að hér gæti hann jafnvel fundið efnivið í nýja bók. Það er eins og Dan Brown sé nýstiginn upp úr ljósmyndinni sem má finna á kápubroti Týnda táknsins. Hann er rauðbirkinn með hökuskarð, íklæddur tweed-jakkanum sem er bæði eitt helsta einkennismerki hans og aðalpersónu bóka hans, Roberts Langdon. Þegar ég heilsa þessum mikla metsöluhöfundi í höfuðstöðvum Doubleday-útgáfunnar á Manhattan kemur táknfræðingurinn snjalli ósjálfrátt upp í hugann. Það liggur því beint við að spyrja hvort Dan Brown sé sjálfur fyrirmynd aðalsöguhetju sinnar. „Þetta er erfið spurning,“ segir Dan Brown og kímir. „Ætli Langdon sé ekki sú manneskja sem ég vildi óska að ég væri sjálfur. Hann er gáfaðri en ég, lifir áhugaverðara lífi og er mun hugrakkari en ég. Við eigum það þó sameiginlegt að hafa báðir brennandi áhuga á táknum, fornum sögum, dulspeki og menningarsögu almennt.“Löng meðgangaBókmenntir Dan Brown og Ásta Sóllilja í vikunni í New york þar sem brown hitti blaðamenn. mynd/bjarturSex ár liðu frá útgáfu Da Vinci-lykilsins þar til Týnda táknið kom út nú í haust. Bæði lesendur og útgefendur var að vonum farið að lengja eftir nýrri bók um Robert Langdon. Ýmsir héldu því fram að ritstífla hrjáði höfundinn. Hann blæs á allar slíkar getgátur og segir ástæðu þessarar löngu meðgöngu vera þá víðtæku rannsóknarvinnu sem liggi að baki bókinni. „Ég vann að bókinni sjö daga vikunnar samfellt í sex ár. Allan þann tíma tók ég mér einungis tíu daga frí frá skriftunum. Ég hef tamið mér að vakna alla morgna klukkan fjögur og skrifa til hádegis og hélt þeim hætti jafnvel á jóladag undanfarin ár.“ „Skriftirnar eru að mörgu leyti erfiðar og tímafrekar, ekki síst vegna þess að ég umskrifa mikið. Fyrir hverja blaðsíðu sem endaði í Týnda tákninu eru tíu síður sem ég skrifaði en notaði ekki.“ Það hefur einnig skapað eftirvæntingu hjá lesendum hversu vel Dan Brown hefur tekist að halda efni bóka sinna leyndu allt fram að útgáfudegi. Aðspurður segist hann hafa frétt af því að óþreyjufullur lesandi hafi brotist inn á skrifstofur bókaforlagsins Bjarts í Reykjavík og stolið próförk að íslenskri þýðingu Týnda táknsins nokkru fyrir útgáfudag bókarinnar. „Að sjálfsögðu er ég ánægður með að fólk bíði spennt eftir að lesa bækur mínar. En öllu eru takmörk sett. Ég vil síður að aðdáendur mínir komist í kast við lögin,“ bætir hann við og hlær. Vísindagrein í sóknÍ leit að lausn Tom Hanks og Audrey Tautou í kvikmyndinni sem gerð var eftir metsölubók Browns um Da Vinci-lykilinn. Hanks hefur lýst áhuga á því að leika Robert Langdon í kvikmynd um Týnda táknið .Við lestur Týnda táknsins veltir maður því fyrir sér hversu stór hluti bókarinnar sé sannleikanum samkvæmt. „Persónurnar í bókinni eru skáldskapur en heimurinn sem þær hrærast í er raunheimurinn,“ segir Dan Brown. „Allir staðir sem ég fjalla um eru til í raun og veru. Sem dæmi má nefna að Safnaaðstoð Smithsonian-stofnunarinnar er til og hefur að geyma risasmokkfisk, loftstein og blautskemmu, eins og lýst er í bókinni. Helgiathafnir sem lesandinn verður vitni að eiga sér einnig stað í raunveruleikanum. Aftur á móti er Peter Solomon ekki til og ekki heldur sonur hans Zachary.“ En eru hugaraflsfræðin viðurkennd vísindagrein? „Ég rannsakaði þessa vísindagrein árum saman og var satt að segja ansi hikandi til að byrja með. Það tók mig langan tíma að átta mig á því að hugaraflsfræði eru alvöru vísindi. Hver einasta vísindatilraun sem ég lýsi í bókinni hefur raunverulega verið gerð og niðurstöðurnar eru viðurkenndar. Þetta hefur ekki síst komið mörgum amerískum lesendum mínum mjög á óvart: „Ha, hefur mönnum tekist að vigta mannssálina? Er með hugarorkunni einni saman hægt að hafa áhrif á hvers konar kristallar myndast í ís? Hvernig getur þetta staðist?“,“ segir Dan Brown og bætir svo við: „Ég er handviss um að hugaraflsfræði muni vaxa hraðast allra vísindagreina næstu árin og eigi eftir að kollvarpa því hvernig við lítum á vísindi hugans.“ Dan Brown segist efast um að mannfólkinu takist að höndla slíka vitneskju af ábyrgð. „Sagan kennir okkur að menn finni ávallt leið til að nota nýja þekkingu og tækni til ills. Þetta viðhorf vegur þungt í persónu Mal’aks, illmennisins í Týnda tákninu. Séu fornir leyndardómar jafn voldugir og ég hef trú á, þá er kannski ekki nema von að þeim hafi verið haldið leyndum. Komist slík þekking í hendur manna sem skortir andlegan þroska til að hagnýta þekkinguna til góðs er voðinn vís.“ Innblásinn af fræðunum„Það einfaldar starf rithöfundar eins og mín að þurfa einungis að fá góða hugmynd í kollinn á sex ára fresti,“ segir Dan Brown og brosir. „Ég fæ innblástur úr öllu því sem ég læri við skriftirnar. Mér finnst til dæmis heillandi að uppgötva að í miðju bandaríska þinghúsinu skuli vera málverk sem sýnir George Washington stíga til himins sem guð. Slík uppgötvun og rannsóknarvinnan sem fylgir í kjölfarið heldur mér við efnið í marga daga. Ég les mér til um verkið og táknin sem þar er að finna og glími við að miðla upplýsingunum áfram til lesenda minna á spennandi hátt. Það er mjög gefandi þegar mér tekst að skemmta lesendum mínum og fræða þá um leið.“ Dan Brown segist gefa sér lítinn tíma til að lesa skáldsögur. Hann lesi helst fræðibækur sem tengist viðfangsefni sínu hverju sinni. Aðspurður segist hann þó eiga sér marga uppáhalds höfunda. Þeirra á meðal nefnir hann John Steinbeck, William Shakespeare og Robert Ludlum. Ég spyr hvort hann þekki eitthvað til norrænna sakamálasagna. Hann þekkir hvorki Arnald Indriðason né Yrsu Sigurðardóttur en segist hafa byrjað á bókinni Stúlkan sem lék sér að eldinum eftir Stieg Larsson. „Upphafskafli bókarinnar var svo óhugnanlegur að ég lagði hana fljótlega frá mér og hef ekki komið mér til að lesa lengra.“ Robert Langdon til Íslands?Dan Brown segir að næsta bók sé þegar byrjuð að gerjast í kollinum á sér og staðfestir að Harvard-prófessorinn Robert Langdon komi þar við sögu eins og fyrri daginn. Orðrómur hefur verið uppi um að næsta bók muni gerast í Rússlandi. Dan vill hvorki játa því né neita en viðurkennir að sér finnist Hermitage-safnið í St. Pétursborg vera stórfenglegt. Ég spyr hvort hann hafi kynnt sér norrænar goðsagnir og heiðin tákn. Megum við eiga von á Robert Langdon í heimsókn? „Það er ekki útilokað,“ segir Dan Brown. „Robert Langdon hefur brennandi áhuga á goðsögnum, táknum og baráttu góðs og ills. Einn helsti kostur þess að skrifa um slíkan táknfræðing er einmitt sá að hann getur borið niður hvar sem er í heiminum. Norræn saga er sannarlega rík af slíkum efniviði svo það er aldrei að vita.“ Að lokum biður Dan Brown að heilsa íslenskum aðdáendum sínum, segir sig langa mikið til að heimsækja landið og bætir við: „Hver veit nema ég finni efni í næstu bók á Íslandi?“ astasollilja@gmail.com
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Sjá meira