Lostafullt ferðalag Tigers Woods 11. desember 2009 05:30 Tiger kvænist sænsku fyrirsætunni Elinu Nordegren. Þau eignuðust dóttur í júní árið 2007 og í febrúar í ár eignuðust þau son.
Tiger Woods fór á örfáum dögum frá því að vera pabbastrákur yfir í mesta dólg heims. Hann var fyrirmynd ungra drengja um allan heim en nú hugsa foreldrar sig væntanlega tvisvar um áður en þeir kaupa handa börnunum sínum Tiger Woods-varning. Alls hafa sjö hjákonur stigið fram og fleiri virðast vera á leiðinni. Atli Fannar Bjarkason tók saman yfirlit yfir skandalinn, en samkvæmt nýjustu upplýsingum hóf Tiger að hitta aðrar konur mjög fljótlega eftir að hann kvæntist hinni sænsku Elinu Nordegren. 31. ágúst 2005 Notandi spjallborðs golfvefsíðunnar 4gea.com segir að stelpa sem hann þekkir til hafi átt einnar nætur gaman með Tiger í Las Vegas. Færslan vakti enga athygli utan vefsvæðisins.26. maí 2009 Klámmyndaleikkonan Holly Sampson lýsir yfir í sérstökum klámspjallþætti að hún hafi sofið hjá Tiger Woods. „Hann myndi deyja ef hann vissi að ég væri að gaspra þessu á netinu. En það er í lagi – mér er sama. Þetta var ekkert leyndarmál,“ sagði hún í þættinum.23. nóvember 2009 Búmm! Bandaríska götublaðið The National Enquirer birtir frétt um að Tiger Woods hafið haldið framhjá með næturlífsdrottningunni Rachel Uchitel. Í fréttinni kom einnig fram að hún hefði útvegað honum aðrar konur. Rachel neitar að hafa sofið hjá Tiger.27. nóvember Woods reynir að ná sáttum við Elinu. Hann segir vini sínum að hann þurfi að kaupa „Kobe special“ – og átti þar við risademantshring eins og Kobe Bryant keypti handa eiginkonu sinni þegar upp komst um framhjáhald hans. Um nóttina hringir nágranni hjónanna í neyðarlínuna og segir Tiger hafa klesst á tré á jeppa. Þegar lögreglan mætir á vettvang liggur Tiger á jörðinni og eiginkona hans er í uppnámi. Í yfirlýsingu sagði að Elin hefði brotið rúðu í jeppanum til að bjarga Tiger út. Annað kom á daginn.1. desember 2009 Hjákona númer tvö stígur fram. Barþjónninn Jaimee Grubbs fær 150.000 dollara, rúmar 18 milljónir íslenskra króna, frá tímaritinu US Weekly fyrir að ljóstra upp að hún hafi einnig sofið hjá Tiger Woods.2. desember 2009 Tímaritið Life & Style segir frá því að athafnakonan Kalike Moquin frá Las Vegas hafi oft og mörgum sinnum sofið hjá Tiger Woods í október. Hún tjáir sig ekki um málið, en fréttin er leiðrétt síðar: Hún svaf ekki hjá Tiger, en sá um að finna handa honum stelpur.5. desember 2009 Hjákona númer fjögur stígur fram. Fyrirsætan Jamie Jungers segir í viðtali við breska blaðið Sunday Mirror að hún hafi átt í tveggja ára ástarsambandi við Tiger. Þau hittust í partíi í Las Vegas þegar hún var trúlofuð hörðum Tiger Woods-aðdáanda.6. desember 2009 Tvær hjákonur í viðbót stíga fram. Cori Rist hitti Tiger í næturklúbbnum Butter í New York og ári síðar voru þau enn þá að hittast samkvæmt dagblaðinu New York Daily News. News of the World sagði frá því að Mindy Lawton hafi hitt Tiger í bakaríi. Þau stunduðu kynlíf á bílastæði fyrir utan kirkju og hann kallaði hana tuskudúkku.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira