Flóamarkaður á Íslendingabar 11. desember 2009 04:45 Íslenskir listamenn selja vörur sínar á Cafe Blasen um helgina. Sigurður Helgason er eigandi skemmtistaðarins.
Séríslenskur flóamarkaður verður haldinn á öldurhúsinu Cafe Blasen í Kaupmannahöfn nú á laugardag og eru það íslenskir listamenn búsettir í Danmörku sem standa að markaðnum. Meðal þeirra sem taka þátt eru Ágústa Hera Harðardóttir, Einar Thor, Jónas Breki, Örn Tönsberg og útvarpsmaðurinn vinsæli Andri Freyr Viðarsson sem mun leika jólatónlist undir nafninu Sir Honkey Tonk. Sigurður Helgason er eigandi Cafe Blasen og hefur hann rekið staðinn frá því í vor í fyrra. Cafe Blasen hefur mikið verið sóttur af íslendingum sem búsettir eru í Kaupmannahöfn „Þetta var gamall draumur sem rættist. Meiningin var ekki sú að opna hér sérstakan íslendingabar en óvart varð þetta að stað sem Íslendingar sækja. Ætli það megi ekki segja að þetta skiptist til helmingja, helmingur gesta sé íslenskur og hinn helmingurinn annað hvort Danir eða erlendir skiptinemar,“ útskýrir Sigurður. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur jólamarkaður er haldinn á Cafe Blasen og segir Sigurður að boðið verði upp á kaffi, kakó og jólaglögg á staðnum. „Staðurinn er ekki stór þannig þetta verður hugguleg fjölskyldu stemning. Þarna verður ýmislegt til sölu, allt frá skartgripum til málverka og fatnaðs. Bæði ég og listamennirnir sjálfir höfum verið dugleg við að breiða út boðskapinn þannig ég býst við að einhverjir kíki við hjá okku. Ef þetta gengur vel þá að sjálfsögðu gerum við þetta aftur að ári og þá kannski á stærri stað.“ Skyldi einhver eiga leið til Kaupmannahafnar um helgina þá hefst markaðurinn klukkan 12.00 á Cafe Blasen við Nørregade. -sm
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira