Stóraukin ásókn í sjóði stéttarfélaga 28. september 2009 06:00 Vitað er að ásókn í örorkubætur eykst í kreppu, og þar með ásókn í dagpeninga úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Fréttablaðið/GVA
Ásókn í styrktarsjóði stéttarfélaga hefur aukist umtalsvert frá því að kreppan skall á. Hjá þeim stéttarfélögum sem haft var samband við stóð þó ekki til að skerða greiðslur úr sjóðunum, sem eru sagðir standa vel þrátt fyrir að tekjur hafi í sumum tilvikum einnig dregist saman. Stærsti útgjaldaliður sjúkrasjóða stéttarfélaganna er dagpeningagreiðslur vegna veikinda. Hjá Rafiðnaðarsambandi Íslands hafa dagpeningagreiðslur aukist um 147 prósent, séu fyrstu sex mánuðir ársins bornir saman við sama tímabil í fyrra. „Við áttum von á að þetta myndi aukast eitthvað, það gerist yfirleitt þegar á bjátar í íslensku samfélagi,“ segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Þrátt fyrir gríðarlega útgjaldaaukningu stendur sjóðurinn vel, segir Guðmundur. Þrátt fyrir kreppu virðist heildarlaun félagsmanna hafa hækkað um í kringum fimm prósent, sem hækki greiðslur í sjóði félagsins um sama hlutfall. Félagið hafi raunar aukið greiðslur úr sjóðum, sér í lagi til atvinnulausra félagsmanna. Dagpeningagreiðslur úr sjúkrasjóði Eflingar hafa aukist um 13,5 prósent og öðrum styrkjum fjölgað, segir Guðrún Kr. Óladóttir, forstöðumaður sjúkrasjóðs Eflingar. Á sama tíma hafa tekjur sjóðsins dregist verulega saman, mögulega um í kringum fimmtung. Guðrún segir að þó gengið sé nærri sjóðnum búi hann að góðri ávöxtun á undanförnum árum. Því hafi hún ekki trú á því að skerða þurfi greiðslur til félagsmanna. Greiðslur dagpeninga úr sjúkrasjóði VR hafa aukist um 43 prósent þegar fyrstu sex mánuðir ársins eru bornir saman við fyrstu sex mánuði ársins 2008, segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR. „Okkar sjóður stendur mjög vel. Tekjur félagsins hafa vissulega dregist saman, en tekjur sjúkrasjóðsins standa undir útborgunum, svo við þurfum ekki að snerta höfuðstólinn,“ segir Kristinn. Þó að greiðslur hafi aukist um 43 prósent er fjölgun félagsmanna sem þiggja greiðslur aðeins um sautján prósent. Kristinn segir þetta koma til af því að sjúkradagpeningar séu tekjutengdir. Af því megi draga þá ályktun að fleiri tekjuháir félagsmenn hafi fengið greitt úr sjóðnum í ár en í fyrra. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Sjá meira