Færri taka á móti stúdentum 28. september 2009 06:00 María Rut Baldursdóttir vill ekki að vísindaferðir háskólanema leggist alveg af. fréttablaðið/anton
Orðið vísindaferð hefur verið notað um skipulagðar ferðir háskólanema til ýmissa fyrirtækja og stofnana. Í þessum ferðum er starfsemi fyrirtækisins kynnt fyrir nemendum auk þess sem boðið er upp á veitingar. Í kreppunni hefur þó eitthvað borið á að vísindaferðum háskólanema hafi fækkað og þykir mörgum það slæm þróun. Samkvæmt Hönnu Maríu Guðbjartsdóttur, formanni Aminu, nemendafélags sálfræðinema, hefur vísindaferðum sálfræðinema fækkað lítillega síðan kreppan skall á. „Munurinn felst aðallega í þeim fjölda nemenda sem fyrirtækin taka á móti í hverri ferð. Núna eru þetta kannski þrjátíu manna hópar, en áður voru þeir mun stærri. Við höfum einnig orðið vör við að bankarnir og aðrar ríkisreknar stofnanir taka ekki lengur á móti háskólanemum.“ María Rut Baldursdóttir, formaður Fisksins, nemendafélags guðfræðinema, segir að lítið verði um vísindaferðir hjá deildinni í vetur. „Við höfum verið að reyna að komast að hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum en ekkert gengið. Í fyrra fórum við í þó nokkrar vísindaferðir og árið þar á undan fórum við nánast aðra hverja helgi.“ Aðspurð segir María Rut að það yrði mikill missir ef vísindaferðirnar legðust alveg af. „Það var gott fyrir námsmenn að fá tækifæri til að kynnast starfi fyrirtækja og því væri slæmt ef þessi hefð legðist af. Ég held þó að það muni ekki hafa mikil áhrif á félagslíf guðfræðinema því við erum svo fámenn deild að við getum auðveldlega hist í heimahúsi eða farið saman í keilu.“ - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira